Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006
8.11.2006 | 01:57
Ekki alveg samkvæm sjálfri sér?
Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins talaði Ingibjörg Sólrún um slæma útkomu kvenna.
Í frétt á vísi.is sagði:
"Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur hlut kvenna í prófkjöri sjálfstæðismanna ansi rýran. Þetta er gömul saga og ný í Sjálfstæðisflokknum hér í Reykjavík að konur bera þar jafnan skarðan hlut frá borði.
Ingibjörg telur skýringuna hljóta að liggja í hugmyndum flokksmanna um jafnréttismál. Þegar þetta gerist æ ofan í æ er ekki hægt að sjá það öðruvísi en að flokksmenn leggi litla áherslu á jafnréttismál. Það er ekki hægt að segja að ekki hafi verið góðra kvenna völ, segir Ingibjörg en óskar þó sjálfstæðismönnum til hamingju með að hafa fengið Guðfinnu S. Bjarnadóttur í raðir sínar."
Þegar aðeins 1. kona náði sæti á meðal fimm efstu hjá Samfylkingunni á Suðurlandi, var skýringin sú að svo margir karlar voru í framboði og svo bætti hún við að þetta væri niðurstaða kjósenda sem yrði að hlýta.
Skrýtið?
Björgvin sigraði - Lúðvík náði öðru sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2006 | 19:37
Nýr þáttur á Stöð 2?
Ég hef reyndar ekki heyrt neitt af þeim áformum, utan þess sem ég las hjá á blogginu hjá Steingrími.
Auðvitað er skynsamlegast að bíða frekari fregna og jafnvel horfa á einn þátt eða svo áður en dómur er felldur, en ég get ekki stillt mig um að segja að mér líst illa á það sem ég hef heyrt.
Er ekki of langt gengið ef stjórnmálmennirnir eru farnir að stjórna umræðuþáttunum líka? Persónulega finnst mér það hljóma hræðilega að formaður þingflokks Samfylkingarinnar, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur og háskólarektor sem er örugg á þing, komi til með að stjórna pólítískum umræðuþætti.
Er mannvalið það "þröngt" fyir íslenskt sjónvarp? En auðvitað er þetta gott fyrir viðkomandi stjórnmálamenn, það er ekki amalegt fyrir þingflokksformann að að geta hegnt eða umbunað með framkomu í sjónvarpsþætti, allra síst á kosningavetri. Ekki slæmt heldur fyrir forseta borgarstjórnar sem er "einmanna" í borgarstjórn fyrir sinn flokk, nú eða fyrir frambjóðenda sem er hefur ekki þá athygli sem sitjandi þingmenn hafa.
En mér finnst þetta slæm þróun ef af verður. Raunar finnst mér fréttastofa Stöðvar 2/NFS hafa fetað nokkuð undarlegan veg hvað hlutleysið varðar, eins og ég benti á í bloggi fyrir ca. 2 mánuðum.
Hinu ber svo að fagna að stefnt sé að því að auka pólítíska umræðu, en ég held að lausnin sé ekki að setja hana undir atvinnustjórnmálamenn.
7.11.2006 | 19:18
Tilurð fyrirsætu
Auglýsingar snyrtivörufyrirtækisins Dove, hafa vakið nokkra athygli hér í Toronto og víðar. Athyglin kemur aðallega til út af því að í auglýsingum koma fram "venjulegar" konur, hvað sem það nú er.
En þessar konur hafa aukakíló, appelsínuhúð og glíma við sömu vandamál og svo margar aðrar konur.
Nú í morgun fékk ég svo í tölvupósti tengil á auglýsingu sem þetta sama snyrtivörufyrirtæki hefur gert.
Auðvitað er það ekkert nýtt að við heyrum ráðist á "heim tískunnar", en það ber ef til vill nýrra við þegar "árásin" kemur frá snyrtivörufyrirtæki.
Svo er það auðvitað spurningin, er þetta einhver "árás", er þetta ekki einfaldlega stórsniðugt "markaðsplott"?
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2006 | 18:47
Ekki eyðileggja þokkalega gott kerfi
Ég er í sjálfu sér ekki að mótmæla því að íslensk tónlist eigi að standa jafnfætis öðrum listgreinum, en í raun væri miklu nær að hækka aðrar listgreinar upp að tónlistinni, nú eða það sem væri allra besta að hreinlega lækka allan virðisaukaskattinn.
En ég held að það sé ákaflega varhugavert að vera sífellt að hræra í virðisaukaskattsálagningu. Ef tillögur um lækkun á virðisaukaskatti á matvörum nær fram að ganga þá verða hér í gangi þrjú virðisaukaskattsþrep.
Það verður þá ef til vill 7% skattur á matvæli (nema þau sem ríkisvaldinu eru ekki þóknanleg), síðan 14% skattur af einhverjum því "dóti" sem rétt þykir að njóti vilvilja ríkisvaldsins og loks hinn almenni 24.5% virðisaukaskattur.
Ekki er að efa að síðan eiga eftir að koma fram mýmargar tillögur um "jákvæðar" atvinnugreinar og framleiðslu sem á skilið að vera færð niður í 14% þrepið.
Með þessu móti verður allt skattaeftirlit og umstang í kringum skattgreiðslur þyngra í vöfum og flóknara.
Svo velti ég því líka fyrir mér, hvernig stendur á því að íslensk tónlist er tekin þarna út úr? Þarf ekki jafnræðisregla að gilda um íslenska og erlenda framleiðslu? Í það minnsta þá hluta framleiðslunnar sem kemur frá EES svæðinu?
Gæti þá þurft upprunavottorð um flytjendur að fylgja með? Hvað ætli hátt hlutfall flytjenda þurfi að vera til að tónlistin sé frá EES svæðinu?
Eigum við svo von á því að lagt verði til að íslensk bjór og áfengisframleiðsla fari í lægra þrepið?
Hvað um íslenska sælgætisframleiðslu?
"Góðu málefnin" eru endalaus.
Ríkisstjórn hefur rætt um að breyta neðra stigi virðisaukaskatts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.11.2006 | 15:30
Ögmundur búinn að taka "þotuliðið" í sátt?
Ummæli Ögmundar Jónassonar um íslenska banka og "silkifataliðið" sem þar vinnur vöktu að vonum nokkra athygli, og var fjallaðum þau í fréttum og í blogheimum. Sjálfur bloggaði ég til dæmis um þau hér.
Nú nýverið barst mér hins vegar ábending um að öll ummæli í þessa veru séu horfin og eftir standi "lesendabréfið" eitt. Ögmundur virðist því hafa breytt heimasíðunni sinni og fjarlægt ummælin.
En skyldi hann vera búinn að taka "þotuliðið" í sátt?
P.S. Í tölvupóstinum sem mér barst um þetta mál er jafnframt minnst á þá athygli sem það vakti þegar Björn Bjarna breytti atriðum á sinni heimasíðu. Verður svipað upp á teningnum nú?
5.11.2006 | 19:55
Borat leggur heiminn að fótum sér
Það er ekki ofsögum sagt að Borat sé að verða að nokkurs konar æði í Ameríku. Myndin malar gull á fyrstu helginni og tekur 1. sætið, nokkuð sem ekki margir áttu von á.
Af vef NYT:
"Indeed, ``Borat'' -- the acclaimed comedy tracing the Jew-fearing title character's road trip across the United States -- stunned observers by opening at No. 1 on Sunday with ticket sales of $26.4 million, more than double the most optimistic forecasts."
"Fox released the R-rated ``Borat'' in just 837 theaters across the United States and Canada, down from initial plans of 2,500 theaters, because polling indicated that huge enthusiasm among critics and the MySpace crowd had not spread to mainstream moviegoers.
In the end, it appeared that naked wrestling, toilet jokes and anti-semitic satire hold universal appeal. ``Borat'' also earned more than $17 million overseas after opening in 17 countries, and was No. 1 in at least Britain and Germany, according to preliminary Fox data.
``It's broad, slapstick humor but with a real intelligence hidden below the surface,'' said Bruce Snyder, Fox's president of domestic theatrical distribution.
English comedian Sacha Baron Cohen stars in the title role as a TV reporter making a documentary about the United States for his impoverished countrymen. Baron Cohen and director Larry Charles, a former ``Seinfeld'' writer/producer, made the $18 million film guerrilla-style. "
Sjá frétt NYT hér.
Ég hef oft haft gaman af þeim "sketsum" sem hafa birst í sjónvarpsþáttunum, en líkega verð ég að reyna að finna tíma til að drífa mig í bíó.
Nokkur góð "skets" má finna hér, en þó ekki úr myndinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2006 | 19:48
Kosningar í Bandaríkjunum "kortlagðar".
Vildi bara vekja athygli þeirra sem hafa áhuga á kosningunum í Bandaríkjunum á frábæru korti sem birt er í New York Times. Þar er safnað sem á einfaldan og aðgengilegan hátt gríðarmagni af staðreyndum og upplýsingum.
Klikkið hér til að sjá kortið.
5.11.2006 | 18:38
Það verður að mega ræða hlutina
Ég horfði á Silfur Egils á netinu núna áðan. Þátturinn var um margt ágætur og umræðan um "innflytjendamál" vakti vissulega athygli.
En það er vissulega þörf á að ræða þessi mál, rétt eins og önnur mál. Það þarf að vera hægt að ræða um málefni innflytjenda án þess að sífellt sé dreginn upp stimpilinn "rasismi".
Það þarf sömuleiðis ekki eingöngu að ræða hvaða stuðning innflytjendur eiga skilið að fá frá hinu opinbera, heldur einnig hvaða kröfur Íslendingar vilja gera til innflytjenda.
Ég er innflytjandi, ég bý í samfélagi sem er líklega eitt besta dæmið um "fjölmenningarsamfélag". Toronto er "suðupottur" ólíkra menningarheima. Hér býr fólk af yfir 100 mismunandi "þjóðernum", skólar hér bjóða upp á túlkaþjónustu fyrir foreldrafundi á yfir 80 tungumálum, það er varla til sú þjóð (fyrir utan Íslendinga) sem ekki á sér "sína" veitingastaði og svo mætti lengi telja.
Kanadabúar eru enda flestir annað hvort innflytjendur eða komnir af innflytjendum.
En það er ekki þar með sagt að hér sé "allt eins og blómstrið eina".
Hér eru vissulega árekstrar á milli innflytjenda og þeirra sem hér hafa lengri rætur. Ofbeldi (sem oft tengist innflytjendum) og trúarofstæki eru líklega algengustu ásteytingarsteinarnir. Virðing fyrir mannréttindum er líka oft tilefni heitra umræðna.
Nýlega var meintu samsæri um hryðjuverk hóps múslima afstýrt og ófriðurinn í Líbanon jók einnig umræður um stöðu innflytjenda, en þar vildu margir meina að óeðlilegur fjöldi kanadískra ríkisborgara sem þurfti að aðstoða við að komast frá Líbanon, væri dæmi um að innflytjendur misnotuðu Kanadískan ríkisborgarétt.
Það vill svo til að einn af mínum uppáhalds dálkahöfundum, Margaret Wente fjallaði um þetta málefni í dálki sínum í Globe and Mail í gær.
Þar segir meðal annars:
"On Thursday evening in Surrey, B.C., there was a remarkable scene. A string of South Asian women stood up at a public meeting to speak out. Their stories weren't pretty. One woman, speaking in Punjabi and English, recounted 20 years of punches, slaps and taunts from the husband with whom she still lives. "If I can improve one girl's life, it is worth my husband's anger," she said.
After several high-profile cases of grisly domestic violence, people in British Columbia's Indo-Canadian community are finally saying the unsayable. There is a bias in South Asian culture that condones violence against women.
"The birth of sons are a celebratory event; when daughters are born, it's not a happy event," says B.C.'s attorney-general, Wally Oppal, himself an Indo-Canadian. He went on to blast the dowry system. "What can be more demeaning for a woman than to have to pay the family of the person you're going to marry?""
"For years, it has been all but taboo to point out that the abuse and demeaning of women is a significant problem among certain immigrant groups. It has been absolutely forbidden to suggest that women in the South Asian immigrant communities of Surrey or Brampton are treated any worse by their fathers, their husbands and their mothers-in-law than are women who live in Westmount or Rosedale. And if they are, it has not been acceptable (until Mr. Oppal came along) to name the main reasons why. Official explanations typically lean heavily on narratives of Western racism, colonialism, economic failings, and class exploitation. "There is increased understanding that a person's vulnerability to abuse may be increased by factors such as dislocation, colonization, racism, sexism, homophobia, disability, poverty and isolation," goes one classic government report. You'd scarcely guess from these accounts that deep-seated anti-female religious and cultural attitudes imported from the old country had anything at all to do with it. "
"Many observant Muslims, Hindus, Sikhs, and other immigrants from highly patriarchal societies have no problem living quite happily within a liberal democratic state. But many others do. Some moderate Muslims here in Canada say that Canadian imams generally share the views of the red-meat mufti. "The entire onus of responsibility for male behaviour is on the women," says Farzana Hassan, who is president of the Muslim Canadian Congress. "This is what young women are being taught all the time."
Western feminists have long denounced the evils of patriarchy. Yet they also excuse and even endorse patriarchal behaviour -- so long as it's imported from somewhere else. Feminists (along with folks like Mr. Khalid) were among the leading proponents of introducing sharia law in Ontario.
In theory, feminism and multiculturalism go hand in hand. They are the mark of a liberal enlightened society. The multicultural credo holds that everyone is equal, that all cultures are equally good, that multicultural values and mainstream values do not conflict, and that the greatest moral virtues are tolerance and respect."
"What happens, then, when multicultural and mainstream values do conflict? What happens when certain subcultures tolerate the abuse of women? What happens is that those practices are either blamed on the defects of the West or wished away. No subculture must be judged or criticized. That explains why you don't hear very many Western feminists standing up to argue for the right of South Asian and Muslim women to not be slapped around by their husbands. "Where two pieties -- feminism and multiculturalism -- come into conflict, the only way of preserving both is an indecent silence," wrote British social critic Theodore Dalrymple.
Many multiculturalists and feminists also feel bound to stand in solidarity with critics of the West. These days, that means Muslims, especially those who have explicitly rejected identity with the West. That's how we've arrived at a most peculiar moment in the history of women's liberation -- a moment when Western feminists endorse the veil as an instrument of female empowerment.
Personally, I'm with the South Asian women who were courageous enough to speak out the other night. It's time to ditch the pieties and end the silence -- for the sake of this generation, and the next. "
Pistilinn í heild má finna hér.
Ég er þeirrar skoðunar að fáar þjóðir þurfi jafn mikið á innflytjendum að halda og Íslendingar. Vinnumarkaðurinn kallar eftir þeim, hagkerfið stækkar hratt og einsleitni þjóðfélagsins (sem þó hefur tekið stakkaskiptum) má vel við aukinni fjölbreytni.
En það þarf samt ekki að þýða að við Íslendingar vilji helst að forvarsmenn þjóðarinnar hoppi með buxurnar á hælunum hringinn í kringum landið og segi "komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja".
Innflytjendastefna Íslendinga hlýtur að markast af þeirri staðreynda að þjóðin er aðili að EES samstarfinu og því geta allir ríkisborgarar aðildarlandanna sótt til Íslands eftir atvinnu. Mér þykir það ekki raunhæft að vilja mismuna aðildarríkjunum á neinn hátt, alla vegna ekki til lengri tíma, þó að einhver aðlögunartími kunni að vera réttlætanlegur. Það var því fyllilega rétt ákvörðun að opna fyrir nýju ríkjunum í Austur-Evrópu. Íslendingar verða líka að gera sér grein fyrir að samstarfið er ekki eins og hlaðborð, þar sem menn taka eingöngu þá "rétti" sem þeim lýst vel á. Íslendingar verða að virða samstarfið og krefjast þess af öðrum.
Íslendingar hljóta jafnframt að taka að þó nokkru marki mið af innflytjendastefnu annara EES ríkja, enda hafa þeir sem fá Íslenskan ríkisborgarétt fullan rétt til hreyfinga innan svæðisins. Það hlýtur að setja einhver mörk, hvað varðar innflytjendur utan svæðisins.
Það er líka nauðsynlegt að skilgreina hvernig við lítum á þessa innflytjendur, sem og að komast að þvi hvert markmið þeirra er með Íslandskomunni.
Eru þetta "farandverkamenn", sem vilja snúa aftur til síns heima, eða eru þetta menn sem hafa hugsað sér að gerast Íslendingar?
Fyrir þá sem vilja gerast Íslendingar, verður að bjóða upp á námsgögn og aðstoð til að gera þeim kleyft að samlagast íslenskri menningu og staðháttum sem best.
Persónulega hef ég aldrei skilið allt þetta tal um fjölmenningarsamfélag á Íslandi, ég hef ekki trú á því að rétt ríflega 300.000 manna samfélag beri það. Ég held að best sé að stefna að einu menningarsamfélagi, þar sem ólíkum straumum er stefnt saman og mynda einn. Erlend áhrif hafa alltaf verið á Íslandi og er það vel, en það fer best að allir landsmenn séu innan sama menningarsamfélagsins, sem vonandi yrði bæði víðsýnt og umburðarlynt.
En það er nauðsyn að ræða þessi mál af opnum huga og án þess að draga upp "fyrirframgerða stimpla". Það er líka nauðsynlegt að innflytjendur komi að þeirri umræðu, þess vegna er það fagnaðarefni að Íslendingur af pólskum uppruna, Grazyna Okuniewska tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og náði ágætis árangri, og að Paul Nikolov tekur þátt í prófkjöri Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu.
En það er þörf á umræðu um innflytjendamál, og það sem meira er, hún er alltof mikilvæg til að skilja hana eftir í höndunum á þeim liðsmönnum Frjálslynda flokksins, sem mest hafa sig í frammi um þau þessa dagana.
Skoðanir Magnúsar vekja Steinunni hroll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2006 | 04:36
Úrslit ljós - Hafnarfjörður sigrar
Auðvitað er það einföldun að segja að Hafnarfjörður hafi sigrað, en þó ekki. Hafnarfjörður er langsterkasta vígi Samfylkingarinnar á Íslandi, eina þéttbýlið sem flokkurinn hefur hreinan meirihluta. Það er ekki óeðlilegt að þeir láti til sín finna. Svo má bæta því við sem félagi minn sagði á msn fyrir skömmu: "Þetta er eins og í boltanum, það er ekki svo auðvelt að leggja Íslandsmeistarana.". En Íslandsmeistararnir koma einmitt úr firðinum, sterkt lið.
Þetta verður að teljast nokkuð áfall fyrir Þórunni Sveinbjörnsdóttur, sitjandi þingmann, ein af þingmönnum Samfylkingarinnar sem hefur tekið hvað einarðasta afstöðu gegn stóriðju (eru skilaboð fólgin þar?), greiddi atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun. Hún er sitjandi þingmaður, leiðtogarnir tveir hverfa á braut, en hún missir bæði Gunnar og Katrínu fram fyrir sig.
Það verður fróðlegt að sjá hvort að ISG harmi þetta?
Sigurvegararnir eru Gunnar og Katrín, sögur segja að þau hafi verið í bandalagi, en ekki skal fullyrt neitt um það hér. Katrín uppsker vel fyrir þá "hógværð" að sækjast eingöngu eftir 2. sætinu.
Guðmundur Steingríms er líklega nokkuð sáttur í 5. sæti en aðrir eru varla að uppskera það sem þeir vonuðust eftir. Þingmanninum úr Mosfellsbæ er hafnað með eftirminnilegum hætti.
Ætli ISG harmi það?
Ég hef "hlerað" að Árni Páll sé ekki sáttur við 4. sætið.
En það er rétt að óska Gunnari til hamingju með sigurinn. En ég held að listinn sem heild "trekki" ekki.
Gunnar kominn í 1. sætið á ný í Kraganum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2006 | 00:37
Vitnað í gárungana
Eitthvað virðast úrslit í prófkjörinu fara misjafnlega í þátttakendurna. Auðvitað er ekkert ólöglegt við smölun til fjalla, en hversu siðlegt það er auðvitað önnur saga. En eins og máltækið segir, allt er leyfilgt í ást og pólítík.
En það rifjar upp þá meiningu "gárungana" sem segja að öflugasta pólítíska félagið á Siglufirði sé Bridgefélagið. Þar sé ákveðið hvernig hlutirnir gerist á Siglufirði og hverja skuli styðja í prófkjörum.
Skipulagskraftur Bridgefélagsins sé slíkur að það sé því að þakka/kenna að um árið voru samanlagðir þátttakendur í prófkjörum Samfylkingar og Framsóknarflokks á Siglufirði, þó nokkru fleiri en voru á kjörskrá í kaupstaðnum.
Það þarf enda útsjónarsemi í bridge, rétt eins og pólítík.
Kristján Möller ánægður með góða kosningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)