Fćrsluflokkur: Trúmál

Feluleikurinn međ sóknargjöld heldur áfram

Ţó ađ vissulega megi halda ţví fram ađ sannleikurinn komi fram í ţessari frétt um sóknargjöld, virđist ţó svo sem ađ ríkisstjórnin reyni ađ halda áfram feluleiknum um sóknargjöld.

Tvćr setningar í fréttinni skipta ţó mestu máli, annars vegar:

"Hćkk­un sókn­ar­gjalda er rök­studd međ fyrri niđur­skurđi sem hafi veriđ um­fram međaltal til annarra rík­is­stofn­ana."

Og hins vegar:

"Sókn­ar­gjöld renna úr rík­is­sjóđi til trú- og lífs­skođun­ar­fé­laga."

Ţessi framsetning í fréttinni bendir til ţess ađ litiđ sé á trúfélög sem ríkisstofnanir, og hinsveger er viđurkenning á ţví ađ sóknargjöld séu ekki félagsgjöld, heldur framlag frá ríkinu til trúfélaga.

Auđvitađ skiptir slíkt meginmáli.

Sóknargjöld ćttu ađ vera innheimt af sóknum, af ţeim sem vilja vera félagsmenn í slíkum félagsskap.

Ađ flokkur eins og Sjálfstćđisflokkurinn, sem hefur alla jafna viljađ kenna sig viđ frelsi einstaklingsins, skuli standa fyrir ţví ađ allir greiđi jafnt, hvort sem ţeir tilheyra trúfélögum eđur ei, sýnir ađ flokkurinn stendur ekki vörđ um hugsjónir sínar.

Ţađ ţarf ekki ađ koma neinum á óvart ađ flokkur sem ekki stendur betur vörđ um grunnhugsjónir sínar tapi fylgi, ekki síst á međa yngra fólks, sem hefur í ć minna mćli áhuga á trú og trúfélögum.

 


mbl.is Sóknargjöld hćkka um tćp 10%
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Auđvitađ eru sóknargjöld félagsgjöld

Persónulega finnst mér ţađ liggja í augum uppi ađ sóknargjöld eru félagsgjöld.  Ţau eru greidd fyrir ţá (af ríkinu) sem eru félagar í viđkomandi félögum.

Hvers vegna ríkiđ er ađ innheimta félagsgjöld fyrir sum félög í landinu en önnur ekki, er mér svo hulin ráđgáta.

Ef til vill hyggst ríkiđ bjóđa öllum félagasamtökum í landinu upp á ţennan kost?

Hitt er ennţá óskiljanlegra, hvers vegna ríkiđ innheimtir hiđ sama félagsgjald af ţeim sem ekki eru í neinum af ţeim félgasamtökum sem ríkiđ innheimtir fyrir.

Ţađ er sjálfsögđ krafa ađ félagsgjöld verđi ađeins innheimt af ţeim sem eru í ţeim félögum sem ríkiđ innheimtir fyrir og ađ val verđi um hvort ađ gjaldiđ sé innheimt međ sköttum eđur ei.

Međ nútíma tćkni er til dćmis sára einfalt ađ bjóđa upp á ţann valmöguleika, t.d. međ ţví ađ á skattskýrslu sé bođiđ ađ haka viđ möguleikann:  Ég óska ađ sóknargjald mitt .... (upphćđ) sé innheimt međ sköttum.

Annađ er hrein hneysa og jađrar viđ mannréttindabrot.


mbl.is Telur sóknargjöld vera félagsgjöld
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Rangt skref, dregur athygli frá hinu raunverulega vandamáli

Ekkert hef ég á móti Siđmennt, ekki frekar en öđrum félagasamtökum.  En persónulega er ég ekki hrifinn af ţessu skrefi.

Ţetta leiđréttir vissulega ađstöđu ţeirra sem eru í Siđmennt, en gerir ekkert til ađ taka á grundvallarmálinu.  

Hiđ opinbera á ekki ađ innheimta félagsgjöld fyrir frjáls félagasamtök.

Ţeir sem kjósa ađ standa utan trú og lífsskođunarfélaga (hvađ sem ţađ svo er), eru ennţá órétti beittir.

Hiđ opinbera skattleggur ţá enn umfram ađra ţegna landsins.

Hvernig í ósköpunum ţađ er réttlćtt ađ ţeir sem kjósa ađ stand utan trúfélaga greiđi aukaskatt til háskólamenntunar á Íslandi, er mér gjörsamlega óskiljanlegt.

Ţađ er lágmarkskrafa ađ gefinn sé sá möguleiki í skattframtali ađ merkt sé viđ hvort viđkomandi vilji ađ hiđ opinbera dragi af honum sóknargjald eđur ei.

Ţađ eru raunveruleg mannréttindi. 


mbl.is Stórt skref í mannréttindabaráttu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Stćrsta óréttlćtiđ enn til stađar

Ţó ađ vissulega beri ađ fagna ţví ađ fólk geti greitt til lífsskođunarfélaga (hvađ svo sem ţađ er) í stađ trúfélaga, er stćrsta réttlćtismáliđ enn óleiđrétt.

Stćrsta réttlćtismáliđ er ađ ţeir sem kjósa ađ standa utan trú- eđa lífsskođunarfélaga ţurfi samt sem áđur ađ greiđa "sóknargjald".

Hvernig getur ţađ samrýmst réttlćtiskennd ţingmanna?

Hvernig getur ţađ veriđ réttlćtt ađ ţeir sem standa utan trú og lífsskođunarfélaga eigi ađ borga hćrri skatt til ríkisins en ađrir, sem nemur "sóknargjaldi"?

Ţetta á ađ lagfćra sem fyrst.


mbl.is Lífsskođunarfélög á viđ trúfélög
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

In God We Trust

In God We Trust, er velţekkt slagorđ úr fjármálaheiminum.  Ţađ hefur prýtt Bandaríska seđla og mynt um langt árabil.  Ef til vill undirbýr Íslenski fjármálageirinn, eđa ríkishluti hans ađ taka upp ţetta sama slagorđ.  Ef til vill er traustiđ á almćttinu ţađ eina sem getur bjargađ geiranum. Eđa ţá ađ traust almennings á hiđ sama almćtti er ţađ eina sem getur fengiđ almenning til ađ halda áfram viđskiptum sínum viđ hina sömu banka.

Alla vegna virđist guđfrćđimenntum hafa stigiđ all verulega í verđi innan fjármálageirans sbr. ráđningu Páls Magússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins.

Ţćr láta ekki ađ sér hćđa faglegu ráđningarnar og öll ferlin sem er búiđ ađ koma upp.

Hitt kann svo vera ađ ríkisstjórnin hafi ekki gefist ađ fullu upp viđ ađ byggja brýr yfir til "Sambandssinna" í Framsóknarflokknum.  Ţar nýtist menntun Páls einnig vel ţví almćttiđ, "Sambandiđ" og pólitík mun eiga ţađ sameiginlegt ađ vegir ţeirra eru órannsakanlegir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband