Afmæli að Bjórá

Heimasætan að Bjórá, Jóhanna Sigrún á afmæli í dag, ef til vill ekki "stór"afmæli, en þegar einungis hefur verið lifað í mánuð, er mánaðarafmæli býsna stórt, og það stærsta hingað til.

En hún hefur staðið sig vel þennan mánuð, ávaxtað sitt pund dyggilega og er orðin 4.9kg og 56cm og lítur ekki út fyrir að ætla að láta þar staðar numið.  Eins og með stórabróður erum við ákaflega heppin, sú stutta sefur vel, borðar vel, og skilar vel frá sér, svo að það sé kurteislega orðað.

Foringinn hefur líka tekið þá stuttu í fulla sátt, er ánægður og glaður með að hafa eignast systkini, þó eðlislægur gassagangur hans geti á stundum hrekkt hana ofurlítið, en hann meinar vel og það er fyrir mestu.

Það er ekki hægt að neita því að ekkert er ánægjulegra en að horfa á börnin sín vaxa úr grasi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband