Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Gat ekki endað öðruvísi

Það er rétt ákvörðun hjá Kaupþingi að fylgja lögbannskröfunni ekki eftir.  Það var reginvitleysa að fara af stað með hana.

Sú krafa gat aðeins aukið tjónið sem bankinn hafði þegar orðið fyrir.

En það er líka verulega sérstök aðferð að setja aðeins lögbann á einn aðila, eina fréttastofu.  Öðrum fjömiðlum var eftir sem áður frjálst að fjalla um málið. 

Við fyrstu sýn er eins og bankinn hafi ekki séð ástæðu til að óttast annað en að aðrir fjölmiðlar myndu hlýða og hætta að fjalla um málið.

Hitt er svo annað mál að það er ekki óskiljanlegt að einhverjir reiðist (eins og Danirnir t.d.) og vissulega leikur enginn vafi á því að það að um lögbrot er að ræða.

En það breytir því ekki að gögnin eru komin út, þau verða ekki byrgð úr þessu, hvorki með lögbanni eða öðrum aðgerðum.

Hitt er svo annað mál hvort að Alþingi telur rétt að breyta lögum um bankaleynd.  Það er önnur umræða.

 


mbl.is Falla frá lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ennþá frjálst að lesa og hugsa

Þó að ég get ef til vill skilið Kaupþing að sækjast eftir lögbanni á birtingu gagnanna, á þeirri forsendu að þeim beri skylda til þess, því vissulega ber þeim skylda til þess að reyna að vernda viðskiptavini sína.  Það eina sem vinnst því með lögbannskröfunni er að Kaupþing hámarkar tjón sitt af atburðinum.

Fjölmiðlar eru búnir að fjalla um málið.  Þúsundir einstaklinga (þar á meðal ég) eru búnir að hlaða niður gögnunum og eru að skoða þau, senda þau og draga ályktanir sínar af þeim.

Og Kaupþing getur ekki sett lögbann á lestrarkunnáttu okkar og ályktunarhæfni, né hugsanir.

Það er of seint að birgja gögin þegar þau liggja fyrir á netinu.

Ef eitthvað er hugsa ég að það væri betra fyrir Kaupþing að fjölmiðlar fjalli um málið, úr því sem komið er, heldur en að láta "kaffistofum" og okkur bloggurum það eftir.

Það er vissulega umdeilanlegt hvort að þessar upplýsingar eigi erindi við almenning, en þar sem almenningi er ætlað að reisa við bankanna, hlýtur að vera stór spurning hvort að hann eigi ekki rétt á því að vita hvers vegna?  Hvers vegna er þarf almenningur að setja punga út þessum upphæðum til að rétta við bankana?

Á móti kemur hins vegar réttur einstaklinga og fyrirtækja til að hafa fjármál sín sem einkamál, en það er auðvitað spurning hvort að sá réttur falli niður ef almenningur þarf að borga brúsann.

Hitt er þó óvéfengjanlegt, gögnin eru þegar opinber.  Með því að krefjast lögbanns á umfjöllun um þau er Kaupþing að hella olíu á eldinn. 

Að mínu mati er það afar skrýtin og heimskuleg ákvörðun, en þó líklega ekki sú eina af þeim toganum sem tekin er Íslenska bankakerfinu um þessar mundir.

En ákvörðun dómstóla er líka umdeilanleg.  Ef fjömiðlar mega ekki fjalla um það sem er almenningi opið á internetinu, hvert erum við þá komin?

 

 

 


mbl.is Lögbanni mögulega hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband