Jóhrannar

Fékk nú í morgun tölvupóst frá Íslandi þess efnis að forsætisráðherra landsins sé kona ekki einhöm og gangi nú undir nafninu Jóhrannar.

Ekki fylgdi með póstinum greinargóðar skýringar á uppruna nafnsins, en þó skyldist mér að þess hefði fyrst verið getið í Fréttablaðinu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Þetta eru "Bakþankar" sem Bergsteinn Sigurðsson skrifar í Fréttablaðið í dag. Hann er eini fastapenni blaðsins sem ég les alltaf. Þessi pistill er flottur eins og við mátti búast. Hann er líka á vísi.is, sjá hér.

Haraldur Hansson, 18.9.2009 kl. 13:35

2 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Þetta er einhver hallærislegasti dálkur sem ég hef lesið lengi, þessir bakþankar. Þvílíkur aulahúmor.

Nú eru allir hoppandi yfir því að Jóhanna vilji ekki vera sígapandi í fjölmiðlum - það eru auðvitað fjölmiðlamenn sem eru verstir yfir því, enda skilja þeir ekki hvernig það getur verið að einhver vilji ekki vera í fjölmiðlum! Hlýtur að vera eitthvað alvarlegt að slíku fólki ...

Fádæma hallærislegt.

Og svo þegar ráðherrar eða þingmenn eru sífellt í fjölmiðlum skammast sama liði yfir því að þeir ráðherrar eða þingmenn séu með sjúklega athyglisþörf.

Pínlegt hvernig fjölmiðlar láta yfir þessu.

Kristján G. Arngrímsson, 18.9.2009 kl. 18:32

3 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Bestu þakkir fyrir þetta Haraldur, ég reyni líklega að finna þetta og lesa.

Kristján, ég held að þú sérst að misskilja þetta, ef til vill viljandi :-)

Það er engin að tala um að Jóhanna þurfi að "gapa" í fjölmiðlum.  En hitt er að eitt af mikilvægari hlutverkum forsætisráðherra er að tala við þjóð sína og auðvitað að vera í forsvari fyrir hana gagnvart öðrum þjóðum.

Þetta hlutverk er aldrei mikilvægara en þegar á móti blæs eins og nú.

En Jóhanna kýs að sinna þessu hlutverki lítt eða ekki, heldur teflir fram "spunakerlingum" eins og Hrannari og Einari Karli.  Þeir kunna vissulega að stíga rokkinn, hafa lítið traust sjálfir.

Þess vegna hrynur traustið af Jóhönnu.

Þegar á reynir standa þeir upp úr sem hafa kjark og þor til að koma til fólksins, jafnvel þó að boðskapur þeirra sé ekki sá sem fólkið vill heyra.

G. Tómas Gunnarsson, 18.9.2009 kl. 19:20

4 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Það hefur nú lítið sést af Hrannari og enn minna af Einari í fjölmiðlum. Aðallega verið Steingrímur J. sem séð hefur um að vera fjölmiðlafulltrúi ríkisstjórnarinnar, og hefur farist það einkar vel úr hendi.

Enda virðist fólk treysta honum. Satt að segja hefur hann vaxið í ráðherraembætti og virðist vera jarðbundinn "no nonsense" maður. Sbr afstöðu hans í Icesave.

Vaxandi óvinsældir ríkisstjórnarinnar og Samfylkingarinnar held ég að megi fyrst og fremst rekja til þess að "skjaldborgin um heimilin" hefur reynst harla lítið meira en orðin tóm. Ástæðan er ekki að Jóhanna er ekki viljug til að ræða við erlenda fjölmiðla.

En ef út í það er farið, hvaða ríkisstjórn gæti orðið vinsæl í svona árferði?

Kristján G. Arngrímsson, 18.9.2009 kl. 22:41

5 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Eðli málsins samkvæmt sjást "spunakerlingar" eins og Hrannar og Einar Karl, ekki mikið í fjölmiðlum.  Þeir snúa rokkunum og má oft sjá handbragð þeirra víða.

Steingrímur hefur unnið afbragðsvel, fólk kann ef til vill ekki að meta hvað hann er að segja, en hann kemur fram og hefur ekki hlaupið í felur.  Því eykst traust á honum, en traustið á Jóhönnu er í frjálsu falli.

Vinsældir og traust eru ekki það sama, og Steingrímur sýnir að það er hægt að halda haus í þessu árferði.  Það hefur Jóhranna ekki gert.

G. Tómas Gunnarsson, 23.9.2009 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband