30.9.2008 | 17:16
Þarf ég að hafa áhyggjur?
Það er eitthvað súrrealískt að sjá auglýsingu frá Glitni á forsíðu mbl.is, og á síðu 3 í Fréttablaðinu undir yfirskriftinni "Þarf ég að hafa áhyggjur?". Einhvern veginn hittir þessi auglýsing beint í mark í dag.
Auglýsingin er fyrir opin fund um fjármál. Sérstaka athygli mína vekja tveir síðustu dagskrárliðirnir, en um þá segir í auglýsingunni.
20.45 Sparnaður - tækifæri og áhættur
Sigurður B. Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Glitni Sjóðum, fjallar um hvernig huga eigi að sparnaði í dag, hvar tækifærin liggja og hvað ber að forðast.
21.05 Hvernig tekst ég á við fjármálin?
Lilja Pálsdóttir, útibússtjóri Glitnis Þarabakka, fjallar um gildi þess að horfast í augu við fjármálin og taka þau föstum tökum.
Er eitthvað sem á betur við í dag?
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.