Hitler, lundi og afsakanir.

Það er oft skrýtið að fylgjast með kosningabaráttunni hér í Kanada.  Það er eins og það vanti aldrei spaugilegu atvikin.

Þessi barátta sem nú er nýhafin virðist ekki ætla að vera nein undantekning.

Í dag kom afsökunarbeiðni frá Íhaldsflokknum, þess efnis að vefsíða þar sem lundi sást drita á Stéphane Dion, formann Frjálslyndaflokksins hefði gengið of langt og væri ósmekkleg.  Lundinn fékk samt að halda sér, en heldur í sér nú.

Frjálslyndi flokkurinn lét sitt ekki eftir liggja og baðst einn frambjóðandi þeirra afsökunar á því að hafa í tölvupóstum líkt Stephen Harper við Hitler.  Þetta hafði frambjóðandinn gert í tveimur tölvupóstum árið 2007.

Íhaldsflokkurinn í fylkisstjórn í Nýfundnalandi hefur fyrir þessar kosningar ákveðið að berjast gegn Íhaldsflokkinum á landsvísu.  Herferð þeirr heitir því skemmtilega nafni "Allt nema Íhaldsflokkinn", eða "Anything-but-Conservative".

Það var svo sömuleiðis í dag sem fyrsti frambjóðandinn dró framboð sitt til baka.  Það gerði einn frambjóðandi Íhaldsmanna í Halifax.  Ekki er enn vitað um ástæður þess.

Ekki alslæmur dagur.

Um þetta og ýmislegt fleira má lesa á vefsíðu The National Post.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband