4.9.2008 | 05:16
Fyrsti skóladagurinn
Það mátti sjá eftirvæntingu og líklega líka stolt í svip fjögurra ára drengs sem labbaði með pabba sínum í skólann í dag.
Þetta var líka dagur sem búið var að bíða eftir í nokkurn tíma. Það er nokkur merkilegur áfangi að byrja í skóla. Líklega er þetta þó það sem myndi á Íslensku kallast leikskóli, enda Enska heitið Junior Kindergarten. En Foringinn er ekki til viðræðu um neitt annað en að hann sé að ganga í skóla.
Líklega er þetta mitt á milli þess sem Íslendingar myndu kalla leikskóla og skóla. Það er aðeins einn kennari fyrir 18. börn, og kennslan fer fram í grunnskóla. Einu sinni í viku er leikfimi og sér sérstakur leikfimikennari um þá hlið fræðslunnar.
Og þó að kennsla sé að nokkru leiti fólgin í að læra að lita, og leika sér úti, er líka byrjað að undirbúa lestrarkunnáttu, reikning og skrift.
Drengurinn segir auðvitað öllum að hann sé byrjaður í skóla og engin ástæða til að rengja það.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.