2.7.2008 | 04:43
Fréttir úr stjórnmálalífinu
Það er ekki hægt að neita því að það vekur nokkra undrun að nú lesi maður slúður úr Íslensku stjórnmálalífi á vefsíðum The Financial Times. Sá þessa frétt hér á mbl.is og skondraði sem leið lá til FT.
Ég þekki ekki til prófessors Wade, eða hversu gjörla hann þekkir til Íslenskra stjórnmála, þó að einhverjar vísbendingar kunni að leynast í fréttinnu um hvaðan hann hefur heimildir sínar.
En vissulega má færa rök fyrir því að vaxandi pirrisngs gæti í stjórnarsamstarfinu, en það gæti þó reynst Fylkingunni tvíeggjað sverð, þó að nokkuð vel blási fyrir flokkinn í skoðanakönnunum þessar vikurnar.
Fyrst þarf að hafa í huga að þingrofsrétturinn er í höndum Geirs og það er alltaf spurning hvort að tækist að mynda ríkisstjórn án þess að rjúfa þurfi þing. Í þannig kringumstæðum sæi ég þó ekki aðra ríkisstjórn en D+B+F og það er vissulega erfitt fley að stýra.
Hvað þá niðustöðu að nú sé allt að kenna einkavæðingunni, ber ef til vill að hafa í huga hvernig rekstur var á bönkunum áður en til hennar koma. Ekki mörgum árum áður hafði ríkissjóður þurft að leggja nokkra milljarða inn í Landsbankann, til að koma honum á réttan kjöl. Þannig var stjórnviskan á meðan stjórnmálamennirnir réðu þar kúrsinum.
Rót vandans einkavæðing íslensku bankanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.