11.5.2008 | 04:42
Istanbulpóll til eignar
Gríðarlega gott hjá Massa. Póllinn í Istanbul hirtur þriðja árið í röð. Unnin til eignar eins og við grínuðumst stundum með í gamla daga þegar einhver náði að sigra þrisvar.
En ég missti af tímatökunni í morgun, eins og oft áður. Nú var lokadagur í leikskólanum hjá Foringjanum, þannig að rólegra verður á laugardagsmorgnum yfir sumarið.
En Massa gerir sig líklegan til að sigra í Istanbul þriðja árið í röð. Ekki alveg nógu gott að sjá Kimi í fjórða sætinu, en það er vonandi að hann hafi sig framúr alla vegna Hamilton í startinu. Ferrari hefur startað vel undanfarið og vonandi verður þar framhald á.
Þó að mér sé ekki um of um McLaren gefið, fagna ég því að sjá Kovalainen í fremstu röðinni. Það sýnir að áreksturinn á Spáni hefur ekki haft nein áhrif á hann og ekki dregið úr honum kjarkinn.
Hamilton virðist ekki eiga of góða daga nú um stundir, en það er spurning hvenær honum tekst að komast í fyrra form. Hann þarf á því að halda að sýna hvað í honum býr og landa sigri.
En það verður líklega eins og oft áður, að línur skýrast ekki fyrr en í fyrstu þjónustuhléum. Þá sjáum við hvaða spil menn eru með á hendi.
Persónulega veðja ég á að Massa nýti pólinn til sigurs. Spurningin er svo hvað Raikkonen tekst að klóra sig upp. En Ferrari virðist vera að gera réttu hlutina nú sem svo oft áður.
![]() |
Hörð átök Massa og Kovalainen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.