Koli

Í kvöld var koli í kvöldmatinn að Bjórá.  Ættaður af Íslandsmiðum og fluttur frosinn hingað að Bjórá með viðkomu í Florida.

Sannkallaðu herramannsmatur sem lítið sem ekkert sá á eftir þessa dvöl í frystikistunni hér. Grillaður eldsnöggt og snæddur með jógúrtsósu, hérlendum kartöflum, salati og hæfilegum skammti af Áströlsku hvítvíni.

Börnin þó ennþá á þeim aldri að þeim þótti tómatsósan betur við hæfi.  Gefur líka meiri litadýrð á diskinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband