1.11.2006 | 03:22
Halló vín
Er líklega réttara heiti á þeim fögnuði sem hefur verið á skemmtistöðum Reykjavíkur um helgina og minnst er á í fréttinni.
En að sjálfsögðu var Halloween fagnað að Bjórá í kvöld.
Við útdeildum reiðarinnar ósköpum af kartöfluflögum og sælgæti. Síðan skruppum við með Foringjanum í stuttan "tollheimtuleiðangur", heimsóttum ein 4 eða 5 hús hér í næsta nágrenni. Foringinn var fljótur að átta sig á staðreyndum og að "tikk or tít" væri leyniorðið fyrir sælgæti. Ég yrði ekki hissa þótt hann vildi fara annan rúnt annað kvöld. Heimasætan var líka uppáklædd, en lét sig þetta umstang þó litlu skipta.
Sífellt fleiri Íslendingar halda upp á hrekkjavöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Bloggar, Menning og listir, Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.