Hættur dihydrogen monoxide

 Ég get ekki stillt mig um að birta hér tvö myndbönd sem fjalla um hættur sem eru fylgjandi notkun dihydrogen monoxide. Ég vil hvetja alla til að horfa á myndböndin, það tekur ekki nema nokkrar mínútur.

 

 

 

Það er rétt að taka það fram að bæði myndböndin fann ég er ég var að lesa blogsíðu Ágústs H. Bjarnasonar, en þar er margan fróðleik að finna og vil ég hvetja þá sem hafa áhuga á "hlýnunarumræðunni" að heimsækja síðuna. Þar er margur fróðleiksmolinn á borð borinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Tvívetnissýra er stórhættuleg.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 11.4.2008 kl. 17:58

2 identicon

BWAAAHAHAHHAHAHAHAHAHA.....yes water is so dangerous. If anyone fell for this go to this link http://en.wikipedia.org/wiki/Dihydrogen_monoxide_hoax

pretty funnyyy

lilja (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 18:28

3 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Það er nú svo, að það virðist duga að "flagga" hættulegu nafni, þannig að fólk sé reiðubúið að ljá nafn sitt við "gott málefni".

Annað efni og nafn sem stundum hefur verið notað í svipuðum tilgangi, er sodium chloride.

G. Tómas Gunnarsson, 11.4.2008 kl. 20:45

4 identicon

Skemmtilegt innlegg í þessa hlýnunarumræðu.  Þetta sýnir svo ekki verður um villst að þetta er að mestu pólitískur áróður sem á sér fáar stoðir í raunveruleikanum.  Þessi herferð um hlýnun jarðar minnir mig þá múgsefjun sem átti sér stað þegar hvalveiðar voru bannaðar, þá var fólk platað með tilfinningalegum áróðri sem átti sér enga stoð.

kv

Bjössi 

Bjössi (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband