Mokað

Ég sit og gægist út um gluggann

Það hefur verið þónokkur vetur hér í Toronto það sem af er ári.  Þónokkur snjór hefur fallið af himnum, gjarnan tekið upp aftur og fallið jafnharðan á ný.  Kuldinn hefur sömuleiðis lætið kræla á sér, en þó aldrei orðið verulegur, mest hefur frostið náð 17 gráðum, sem hefur jafngilt nokkuð vel yfir 20 gráðu frost með vindkælingunni.

En snjómokstur er hin besta líkamsrækt og frískandi að moka í morgunsárið.Gluggadvöl

En Foringinn er sömuleiðis hrifinn af snjónum, en hefur þó verið fjarri góðu gamni nú undanfarna daga, þar sem nefrennsli hefur

Bjórá

verið að plaga hann.  Sjálfur var ég því sem næst í rúminu um helgina, en allt horfir þetta til betri vegar. Jóhanna hefur hins vegar staðið keik og ekki nema einn og einn hormoli læðst fram.

Nú seinnipartinn í dag er svo spá frostregni og virðist sem hinni hnattrænu hlýnun hefur verið slegið á fre

null

st, allavegna fram á vorið.

En eftir að hafa hreinsað stéttina, tröppurnar og heimreiðina gekk ég örlítið um nágrennið og smellti af nokkrum myndum sem sjá má fjórar af hér.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband