Þurfa opinberir starfsmenn frekar vernd en starfsmenn á almennum markaði?

Hvar liggja mörkin á milli ábyrgðar starfsmanns og ábyrgðar fyrirtækis eða stofnunar?  Það er líklega spurningin sem skiptir mestu máli þegar rætt er um hvort að rétt og eðlilegt sé að höfðað sé mál gegn starfsmönnum stofnunar s.s. Seðlabankans.

Persónulega tel ég opinbera starfsmenn ekki eiga eða þurfa meiri rétt en starfsmenn fyrirtækja á almennum vinnumarkaði.

Ég tel starfsmenn Seðlabankans eigi ekki að þurfa frekari vernd en t.d. lögreglumenn.

Að krefjast "skaðleysis" þeim til handa finnst mér langt seilst.

Þegar Seðlabankinn ákærði Samherja, voru jafnframt 3. eða 4. lykilstarfsmenn Samherja ákærðir.

Er eitthvað óeðlilegt að lykilsstarfsmenn Seðlabanka geti sömuleiðis verið ákærðir?

Fram hefur komið í fréttum að mjög vafasöm tölvupósts samskipti hafi farið á milli starfsmanna Seðlabanka og Ríkisútvarpsins.

Er óeðlilegt að fyrir slíkt sé kært?

Ef yfirmenn viðkomandi starfsmanna stíga fram og segja þá aðeins hafa verið að framfylgja skipunum sínum, horfir öðru vísi við og ætti þá ákærur að beinast að yfirmönnum?

En eins og frægt er orðið, þykir að ekki nóg að hafa eingöngu verið að framfylgja skipunum til að teljast saklaus.

Persónulega get ég ekki séð nein rök fyrir því að opinberir starfsmenn fái "skaðleysi", frekar en starfsmenn hjá öðrum fyrirtækjum.

Opinberir starfsmenn hljóta að þurfa að gæta þess eins og aðrir að misnota ekki vald sitt eða starf og gæta þess að lög og lagaheimildir séu að baki aðgerða þeirra.

Svo að eitt af tískuorðum nútímans sé notað, þá þurfa þeir einnig að gæta þess að gæta meðalhófs.

Það væri mikil afturför ef opinberir starfsmenn yrðu gerðir "skaðlausir" vegna valdníðslu gegn almenningi.

 

 


mbl.is Umdeilanlegt að höfða mál gegn starfsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem verðandi greiðandi (í gegnum skatta) fyrir afglöp þessa opinberru starfsmanna þá hef ég lítinn áhuga á að auka vernd fyrir afglöpin þeirra.

Ég er þér algerlega sammála, opinberir starfsmenn meiga engan veginn vera verndaðir gegn því að nota opinbera stöðu sína til að mögulega hefna sín á einhverjum eða taka niður einhvern sem þeim hugnast ekki eða fyrir aðra.

Halldór (IP-tala skráð) 24.4.2021 kl. 20:43

2 identicon

í raun virkar skaðabótaábyrgðin þannig í lögum að fyrirtækið ber ábyrgð á afglöpum starfsmanna þannig að það á að ganga að þeim ef menn vilja lögsækja. Síðan er það fyrirtækisins að ganga að starfsmanninum ef hann hefur skaðað fyrirtækið með framferði sínu.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 25.4.2021 kl. 08:49

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hver maður skal ábyrgur gerða sinna. 

Ragnhildur Kolka, 25.4.2021 kl. 08:50

4 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Halldór, þakka þér fyrir þetta. Mér þykir nú reyndar líklegt að flest fyrirtæki og stofnanir greiði mestan eða allan kostnað fyrir starfsmenn sína.

Frægt er þegar Seðlabankinn greiddi málskostnað seðlabankastjóra, í máli hans gegn Seðlabankanum.

En valdi fylgir ábyrgð og ekkert óeðlilegt að svo verði áfram.

@Jósef, þakka þér fyrir þetta. Ég er ekki sérfræðingur í lögum, en ég þekki það sem ég sé, les og heyri.

Í máli Seðlabankans gegn Samherja, eru lykilstarfsmenn ákærðir. 

Ekki eru mörg ár síðan Ríkissaksóknari ákærði hjúkrunarfræðing ásamt Landspítalunum, vegna meintra afglapa í starfi. Þar var sýknað, en augljóslega fer hið opinbera í fararbroddi þeirra sem telja eðlilegt að ákæra einstaklinga í slíkum málum.

Er ekki alsiða að lögsækja blaðamenn sem vegna þess sem þeir skrifa og birtist undir nafni?  Ég held að þó nokkur slík máli hafi komið fyrir dómstóla á undanförnum árum.

@Ragnhildur, þakka þér fyrir þetta.  Það er nauðsynlegt að valdi fylgi ábyrgð, en ekki sé hægt að misbeita því í "skaðleysi".

G. Tómas Gunnarsson, 25.4.2021 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband