Píratar töpuðu - kosningabaráttunni

Auðviað geta Píratar verið nokkuð ánægðir, þeir stórauka fylgi sitt og ná að festa sig í í sessi, en það er alltaf en.

Staðreyndin sem blasir við er að Píratar töpuðu kosningabaráttunni, glutruðu niður afar vænlegri stöðu.

Þó að þeir reyni að bera sig borginmanlega (og nota bene tala eins og "hefðbundnir valdaflokkar) og segjast ekki hafa búist við meiru, blasir við að það er rangt.

Þeir eru einfaldlega ekki að segja satt.

Það blasir við öllum sem vilja sjá og velta fyrir sér pólítík, að flokkur sem á von á því að fá í kringum 14-15% í kosningum, tekur ekki að sér að mynda ríkisstjórn fyrir kosningar.

Einhverjir vilja sjálfsagt benda á að að slíkt stjórn eigi ekki svo langt í land miðað við kosningaúrslit, og hafa nokkuð til síns máls.  En það er ekki síður vegna góðrar frammistöðu Vinstri grænna frekar en Pírata.

Aðrir vilja sjálfsagt kenna slælegri kosningaþátttöku ungs fólks um. Um það er að segja að ég hef reyndar engar tölur séð um það enn, en skuggakosningar framhaldsskólanna gefa Pírötum vissulega betri úrslit en hinar raunverulega, en samt engan veginn nóg til að halda því fram að betri kjörsókn hefði gefið verulega breytt úrslit.

Píratar einfaldlega "fluttu inn í skýjaborgirnar" sem skoðanakannanir og fjölmiðlar teiknuðu upp.  En þeir stóðu ekki undir því.

Ég held að þetta megi líklega að stórum hluta skrifa á forystufólk Pírata. Þó að margir vilji breytingar í íslenskum stjórnmálum felur það ákall (að mínu mati, þó að ég geri ekki kröfu til að teljast talsmaður kjósenda) ekki í sér að kjósendur séu að óska eftir  forystumönnum veifandi einhverjum spjöldum í sjónvarpssal og dónalegu pískri. Það gefur vissulega í skyn "ný stjórnmál", en ekki í þá átt sem flestir óska sér að ég tel.

Ég reikna heldur ekki með því að flokkurinn hafi aflað sér margra atkvæða á þingi ASÍ.

En þar með er ekki sagt að Píratar séu ekki einn af þeim sem teljast sigurvegarar, þriðji stærsti flokkurinn, sá flokkur sem bætir næst mest við sig (mest af þeim flokkum sem áttu sæti á þingi) og er í eftirsóknarverðri stöðu.

Nú hefst alvaran.


mbl.is Einar Pírati: Súrsæt niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Skörp greining staðreynda, Tómas!

Jón Valur Jensson, 30.10.2016 kl. 11:06

2 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Tommi minn, passaðu þig þegar Jón Valur Jensson er farinn að segja þig hitta naglann á höfuðið!

Annars er líklega rétt sem ég held að Bjarni Ben hafi sagt að kjósendur Framsóknar fóru til Sjálfstæðisflokksins. Kjósendur sem eru hræddir við breytingar kjósa jafnan þessa tvo flokka. Þetta eru ekki mín orð heldur einhvers frammara eða sjálfstæðismanns, man ekki hvers.

Kristján G. Arngrímsson, 3.11.2016 kl. 15:02

3 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

@Kriatán Þakka þér fyrir þetta.  Ég er orðinn svo gamall Kristján að ég er löngu hættur að hafá áhyggjur af því hvejir eru sammála mér, eða hverjum ég er sammála.

Það er ekki það sem skiptir máli, heldur hvað bæði ég óg "þeir" hafa að segja.

Ég reyni eftir fremsta megni að hlusta eftir því.  Hef reyndar sjaldan eða aldrei fyrirhitt mann sem er sammála mér í öllu.

Ég og Jón Valur höfum marg oft rifist á þessu bloggi mínu og það klagar ekkert upp á mig, ekki heldur ef svo vill til að hann sé sammála mér.

Vissulega eru fylgishreyfingar á milli B og D, en heildarmyndin er mikið flóknari en það. Það eru miklar fylgishreyfingar á milli B og V, og hafa alltaf verið. Fylgishreyfingar á milli S og D og svo má lengi áfram telja.

Einföldu "myndirnar" henta hins vegar vel á twitter, í stuttar fréttir og 90 sek. inskot í útvarp eða sjónvarp.

G. Tómas Gunnarsson, 3.11.2016 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband