Að mörgu leyti hefur framganga Rússa í Ukraínu verið með gamalkunnum hætti. Vissulega verða til "afbrigði" í hvert sinn, en megin þemað er gamal kunnugt.
Fyrst skaparðu vandamál, svo býðstu til að leysa það. Allt með "mannúðina" og "alþýðuna" í fyrirrúmi, þeirra hagsmuni og velferð. Fyrir "alþýðuna", jafnvel í öðrum ríkjum, eru leiðtogar reiðubúnir til að beita hermætti sínum.
Ukraína hefur um árhundruð verið á "áhrifasvæði" Rússa. Rússar hafa með yfirgangi, morðum, skipulögðu svelti og "Síberíuflutningum" kúgað Ukraínubúa svo öldum skiptir. Þegar þynnst hefur í sveitum Ukraínu vegna þessa, hafa þeir flutt inn sitt eigið fólk, og þannig "Rússavætt" mörg héruð Ukraínu.
Í skjóli þessa, telja þeir sig nú geta talað í "nafni alþýðunnar". Þeirrar alþýðu sem þeir fluttu inn í stað þeirrar alþýðu sem þeir drápu og murkuðu lífið hægt úr í Síberíu.
Þannig virkaði Sovétið og þannig telja Pútin og hans fylgismenn að Rússland geti virkað í dag.
Það sem er svo verst, er að líklega virkar þessi fyrirætlan.
Hvorki Evrópusambandið, Bandaríkin eða nokkur annar aðili kemur til með að standa í vegi fyrir því, þó að þeir kjósi að skapa einhvern hávaða.
Er einhver að tala um Krím í dag? Hve margir munu tala um Austur-Ukraínu að ári liðnu?
Hvað margir töluðu um Eystrasaltslöndin frá 1945 til 1987?
Rússar vilja í mannúðarleiðangur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er eins og maðurinn hafi alls ekki fyldst með málinu og botni því ekkert í því.
Snorri Hansson, 11.8.2014 kl. 02:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.