26.2.2014 | 20:58
Hárrétt mat
Að mínu mati hittir Daniel Gros naglann á höfuðið. Að draga umsóknina til baka mun ekki skaða framtíðarmöguleika Íslands til að ganga í "Sambandið".
Allt annað er hræðsluáróður.
En sú framtíðarumsókn yrði að vera betur undirbúin og byggð en sú umsókn sem verður líklega dregin til baka nú.
Sú umsókn yrði að njóta stuðnings allrar ríkisstjórnar, njóta trausts meirihluta á Alþingi og sýnt þætti að umsóknin nyti velvilja meirihluta Íslendinga, að Íslendingar hefðu raunverulegan vilja til að ganga í "Sambandið".
Allt þetta skorti núgildandi umsókn. Hún var keyrð áfram af Samfylkingunni, af óðagoti, flumbrugangi og æsingi.
Það kann ekki góðru lukku að stýra, því er staðan eins og nú má sjá.
Ég var búinn að blogga áður á svipuðum nótum, þá færslu má sjá hér: Að missa "Sambandið".
Skaðar ekki mögulega umsókn síðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 27.2.2014 kl. 05:44 | Facebook
Athugasemdir
Nkl.
Áhugi Evrópusambandsins á Íslandi virðist ekki vera gagnkvæmur.
Að minnsta kosti ekki á þessum tímapunkti.
Guðmundur Ásgeirsson, 27.2.2014 kl. 01:21
Ísland lítur örugglega út í þeirra augum eins og skrælingjabæli þar sem hver höndin er upp á móti annari og hver og einn gerir það sem honum sýnist án tillits til annara, það er ábyggilega bara fyrir kurteisis sakir að þeir segja að Ísland sé velkomið í hópinn. Félagslegi vanþroskinn hefur náð nýjum lægðum á alþingi undanfarna daga, í stofnum sem ætti að vera til fyrirmyndar og sóma fyrir land og þjóð.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 27.2.2014 kl. 07:34
Takk fyrir innleggin. Ég held að margir Evrópskir stjórnmálamenn hafi kynnst svipuðu heima fyrir, fleiri en við ef til vill höldum.
En það er sjálfsagt fyrir Íslendinga að fylgjast vel með því sem er að gerast innan "Sambandsins" og eiga við það góð samskipti.
Nú er hart tekist á um hvert skuli stefna. Verður til sambandsríki euroríkjanna, og ef svo verður hvað verður um þau ríki sem ekki vilja ganga þar inn?
Eða verður frekar valin hin Breska leið og slakað á miðstjórnarvaldinu og fyrst og fremst lögð áhersla á innri markaðinn?
Ég held að niðurstaðan geti skipt gríðarlegu máli um hvort Íslendingar eigi eftir að sýna einhver áhuga á því að ganga í "Sambandið".
Nú er talað eins og næsta öruggt sé að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Bretland haldi áfram í "Sambandinu".
Hvaða þýðingu hefði það fyrir Íslendinga ef ein af þeirra stærstu viðskiptaþjóðum ákvæði að ganga út úr ESB?
Það er alveg ljóst að Íslendingar hafa ekkert að gera með aðildarumsókn nú.
Því er lang best að draga umsóknina til baka.
G. Tómas Gunnarsson, 27.2.2014 kl. 13:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.