12.1.2013 | 22:02
Krossgötur?
Sá á netinu að stuðningsfólk Árna Páls Árnasonar er búið að stofna blogg til stuðning formannsframboði hans í Samfylkingunni.
Það er vel til fundið og klókt að nota netmiðlana í þeirri baráttu.
Ef ég hefði atkvæðisrétt í þessari kosningu myndi ég án efa kjósa Árna Pál. Það veitir ekki af að breyta um kúrs í Samfylkingunni.
Verð þó að hnýta í nafnið sem er á síðunni.
Krossgötur. Hljómar eins og um sé að ræða sértrúarsöfnuð.
Ef til vill er það tilfellið?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.