20.12.2012 | 05:41
Forréttindastéttir ríkisstjórnarinnar
Á sama tíma og berast fréttir frá Alþingi Íslending um að Samfylking og Vinstri græn vilji herða enn frekar á vörugjöldum og skattheimtu á Íslendingum, þá má lesa að ríkisstjórnin gefi sér tíma til þess að auka forréttindi þeirra sem ferðast.
Skítt með pakkið sem ekki á fyrir því að komast til útlanda.
Það eru jú að koma kosningar.
Þá er rétti tíminn til að auka forréttindi þeirra sem ferðast.
Ferðalög eru að verða eins og "dollarabúðir Sovétsins". Ef þú ferðast nóg, getur þú birgt þig upp af ódýrara áfengi, fengið þér ódýrari gleraugu, keypt þér nýjustu tækniundrin á mun lægra verði og jafnvel hreinlætisvörur eru á skaplegra verði.
En þeir sem ekki ferðast?
Jú, þeir einfaldlega borga gjöldin, eða verða að komast af án þessara "lífsins lystisemda".
Engan innan ríkisstjórnar heyri ég tala um að nauðsyn sé að lækka álögur, gera Íslendingum kleyft að versla meira heima fyrir.
Nei, helst öll gjöld eru hækkuð, síðan er farið í að auka undanþágurnar.
Það gerist líklega ekki "vinstristjórnarlegra" en það, eða hvað?
Hámark á tollfrjálsum varningi hækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvaða,hvaða. Það sem er að gerast á Íslandi kallast "Norræna velferðin". Sem við getum sagt að sé spegilmynd af Sovétríkjum, Kína og Norður-Kóreu. Enginn er fátækur, allt fyrir öreigana. Aðeins meira fyrir okkur hin sem sitjum við kjötkatlana...
Á þetta ekki að vera svona, ég bara spyr? Spyrjið ykkur sjálf þegar þið farið að kjósa á næsta ári....
jóhanna (IP-tala skráð) 20.12.2012 kl. 06:02
Velferðaráðherra sagði í Kastljósi í gær að Ellilýfeyrisþegar fengju ekki leiðréttingu á sínum kjörum þeir hefðu það alveg nógu gott.
Vilhjálmur Stefánsson, 20.12.2012 kl. 09:46
Lífeyrisþegar hafa það greinilega töluvert betra en þingmenn og embættismannahyskið sem fékk launaskerðinguna sína bætta afturvirkt en lífeyrisþegar þurfa enga leiðréttingu ...þeir hafa það svo gott að mati Norrænu HELferðarstjórnar Jóhönnu Sig og Steingríms Joð sem helst er hægt að líkja við stjórnartíð þjóðernissósíalista í Evrópu á miðri 20. öldinni. Og svo eru fundnir upp nýir skattar á hverjum degi til að mergsjúga launaþrælana. Ætlar einhver í alvöru að kjósa þessa svikahrappa aftur?
corvus corax, 20.12.2012 kl. 11:20
Ja, við verðum að viðurkenna að þeir eru ekki að spauga þegar þeir segjast vera vinstrimenn.
Reyndar er það það eina sem þeir segja sem er ekki hrein lygi.
Ásgrímur Hartmannsson, 20.12.2012 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.