6 mánuðir

Já í dag eru liðnir 6 mánuðir frá því að Jóhanna Sigrún Sóley leit dagsins ljós í fyrsta sinn.  6 mánuðir eru í sjálfu sér ekki langur tími, nema auðvitað það sé allur sá tími sem þú hefur lifað, en hún hefur þó sannarlega sett mark sitt á lífið hér að Bjórá á þeim tíma. 

Reyndar finnst mér hvorutveggja, að þetta hafi allt saman gerst í gær og að hún hafi verið hér eins lengi og minni mitt nær.  Þannig er þetta bara.

En hún er kát og fjörug og á meðfylgjandi myndbandi má sjá hversu leikin hún er orðin að höndla pelann á 6 mánaða afmælinu sínu.  Sumir hafa haft að orði að sterk handtök hennar um drykkjarföngin hafi hún fengið frá föður sínum, en um það er betra að aðri dæmi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband