27.8.2011 | 23:08
Bernaise borgarar - 30 ára gömul nýjung?
Sá á netinu að verið var að tala um Bernaise sósu á hamborgara sem merkilega nýjung.
Ætli það séu ekki u.þ.b. 30 ár síðan ég keypti fyrst hamborgara með bernaise á veitingastað á Íslandi. Það var auðvitað á Bautanum á Akureyri, en Smiðjuborgarinn sem þar var lengi á matseðlinum (er ef til vill enn), var með sveppum og bernaisesósu.
Akureyringar enda löngum staðið framarlega í nýjungum hvað hamborgarna varðar, sbr. franskar á milli o.s.frv.
En ég gæti alveg torgað einum Smiðjuborgara akkúrat núna, svona getur netið vakið hungur.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Menning og listir, Saga | Facebook
Athugasemdir
Þessi fræga og góða sósa var fundin upp 1836 í Frakklandi sjá Saint-Germain-en-Laye,
Guðmundur Júlíusson, 28.8.2011 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.