Orðfæri umræðunnar - Sérfræðingar segja

Eitt er það sem færst hefur í vöxt í Íslenskum fjölmiðlum upp á síðkastið sem fer óstjórnlega í taugarnar á mér.

Það ser fyrirsagnir sem ég kalla "Sérfræðingar segja".  Til dæmis:  Stjórmálafræðingur segir að....., Hagfræðingur telur að ..., Sálfræðingur segir....

Þarna er gerð tilraun til að auka vægi fréttarinnar með því að nota menntun einhvers einstaklings til að ljá fréttinni meira vægi.  Stundum hef ég það líka að tilfinningunni að menntunin sé notuð til að komast hjá því að nafnið á persónunni upplýsist strax.  Margir "fræðimenn" hafa enda gjaldfallið svo í umræðunni undanfarin misseri, að líklega þykir betra að nafnið þeirra komi ekki fram í fyrirsögn, enda myndi það draga úr áhuga á fréttinni.

En það eru einstaklingar sem hafa skoðanir og tala við fjölmiðla en ekki menntun þeirra. Það færi því betur á að nefna nöfn þeirra einstaklinga sem vitnað er til, heldur en að tiltaka menntun þeirra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fer það ekki dálítið eftir því hver á í hlut? Mér þykir það eðlilegt að nota menntun eða akademískt starfsheiti ef um er að ræða fræðimann sem ekki er mjög virkur í þjóðfélagsumræðu almennt og fáir kunna deili á, t.d: "[einhver lítt þekktur] Prófessor í sjávarlíffræði segir mögulegt að auka þorskkvóta".
Menn á borð við Þorvald Gylfason, Þórólf Matthíasson eða Eirík Bergmann, sem láta mikið að sér kveða og hafa sterkar pólitískar skoðanir á hinsvegar auðvitað að kynna með sama hætti og t.d Hannes Hólmstein Gissurarson, undir nafni.
Mér virðist annars oft sem að kratískir fræðimenn séu frekar kynntir með akademískum titlum í fjölmiðlum. Andríki býður fram nokkuð sannfærandi skýringu á slagsíðu fjölmiðla sem kannski á líka við í þessu samhengi:

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 04:56

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Það er auðvitað þekkt Guðmundur Tómas, að orðin vega þyngra ef frægur maður lætur þau falla, svo maður tali nú ekki um ríkur. Á þennan veikleika mannlegs eðlis er jafnan leikið bæði af fjölmiðlum og fræðimönnum. Og fólk er því miður alltof trúgjarnt og tekur gagnrýnislaust við orðum hinna frægu og ríku.

Gústaf Níelsson, 29.8.2011 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband