Stórafmæli að Bjórá

Það var stórafmæli hér að Bjórá í gær, Foringinn fagnaði af krafti þriggja ára afmæli sínu.  Allt fór það þó hæversklega fram, veislan fámenn og góðmenn, enda ekki allir sem geta mætt svona á mánudegi.  Því verður líklega fjölmennari veisla um næstu helgi.

En þó að vissulega hefði verið tilvalið, svona í stíl við þann "eitís" tíðaranda sem virðist tíðkast í stórveislum nú um stundir, að bjóða upp á Minipops nú eða Jordy (sem sló þó ekki í gegn fyrr en 92), þá var foringinn ákaflega sáttur við þá trukka, púsluspil og bækur sem rak á hans fjörur í gær.  Svo er reyndar syngjandi hamsturinn sem hann fékk í afmælisgjöf fyrir 2. árum, ennþá í fullu fjöri.

Hápunkturinn er þó alltaf kakan og má sjá stutt myndband hér.

 

P.S.  Þeir sem kunna það "trikk" að "embedda" myndbandið hér í færsluna og eru reiðubúnir að deila þeirri kúnst með mér, bendi ég á athugasemdir hér að neðan.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband