Áhugaverðir tímar?

Það er all nokkuð um liðið síðan bloggað hefur verið hér að Bjórá.  Einhvernveginn hef ég ekki fundið mig í bloggheimum.

Ég fylgdist sömuleiðis lítið með fréttum um nokkurt skeið, sérstaklega fréttum frá Íslandi.  Þær voru svo margar á þann veginn sem lítt kættu geð mitt.

En það er tímabært að taka upp þráðinn að nýju og reyna að koma hugsunum og hugrenningum frá sér.  Það er hollt huganum að hugsa og skrifa á Íslensku, helst flesta daga.

Nú eru mikil umbrot í Íslensku samfélagi, ágreiningur uppi, en mikilvægar ákvarðanir teknar.

Það sem sagt er vera Kínversk bölbæn kemur nú oft upp í hugann, megi þú lifa á áhugaverðum tímum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband