16.11.2008 | 18:22
Viltu vera Seðlabankastjóri?
Ekkert starf hefur verið umtalaðra undanfarnar vikur og mánuði en starf Seðlabankastjóra. Hversu skemmtilegt væri það ekki að ráða vaxtastiginu í landinu?
Hvað áhrif hefur vaxtastigið? Hvað gerist ef þú hækkar vextina upp úr öllu valdi? Hvað gerist ef þeir eru langt undir verðbólgu?
Á þessari síðu sem er frá Finnlandi eru leikmenn Seðlabankastjórar og stjórna vaxtastiginu. Það hefur að sjálfsögðu bein áhrif á efnahagslífið.
Auðvitað er um einföldun að ræða, þar sem leikmaðurinn stjórnar eingöngu vaxtastiginu, en þó má deila um það hversu mikið fleiri stjórnunartæki Seðlabankinn hefur í raunveruleikanum yfir að ræða.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Spil og leikir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.