6.11.2008 | 18:19
Nafnleysi?
Það er ágætt að það er "virkni" í Íslensku samfélagi, fólk hefur skoðanir, það mótmælir, semur ályktanir og áskoranir, lætur í sér heyra.
Eins og gengur er margt gott sem kemur fram, annað síðra, sumt finnst mér vitlaust og svo framvegis.
Það er svipað með þessa áskorun, sumu í henni er ég sammála, öðru ekki. En mér þykir framtakið gjaldfella sig strax í byrjun, með það að öngvir skrifi undir áskorunina. Eru aðstandendur hennar hræddir við að láta nafn sitt koma fram?
Nóvemberáskorunin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.