12.10.2008 | 03:25
Það lítur ekki vel út
Ég horfði ekki á tímatökurnar í nótt sem leið, en er að gera mig kláran fyrir keppnina sem hefst núna fljótlega.
En þetta lítur ekki alveg nógu vel út fyrir mína menn. 2 og fimmta sætið væri í sjálfu sér ásættanlegt, ef það væri Massa sem væri í öðru sæti og ætti því meiri möguleika á því að keppa við Hamilton.
En auðvitað þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Það sem þyrfti auðvitað að gerast er að Raikkonen taki fram úr Hamilton í ræsingunni og haldi hraðanum niðri á meðan Massa vinnur sig upp. En Massa þarf líka á góðri ræsingu að halda, þetta er gríðarlega mikilvæg keppni. Ef að Massa nær ekki fleiri stigum en Hamilton í þessarri keppni, er þetta lang leiðina tapað fyrir hann, þó að fræðilegir möguleikar verði til staðar.
En það sannaðist reyndar í fyrra að ótrúlegir hlutir geta gerst og enginn ástæða að gefast upp, fyrr en ekið er yfir rásmarkið í síðustu keppninni.
En vonandi verður þetta spennandi og skemmtilegur kappakstur.
Hamilton og McLaren með undirtökin í Fuji | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.