19.9.2008 | 17:56
Hitamál til lykta leitt?
Það er mikið fagnaðarefni ef sátt næst um starfsemi REI á þessum nótum. Það er löngu tímabært að setja starfsemina í farveg, þannig að hægt sé að gera framtíðarplön.
En auðvitað er ekki sama í hvaða farveg starfsemin er sett. Þetta sýnist mér vera góð lausn og í raun sú eina ásættanlega.
Það sem gefur þessarri lausn gildi er að ekki verður sett meira af fjármunum Orkuveitunnar til uppbyggingar REI, heldur leitað til þeirra sem áhuga hafa á að fjárfesta í Íslensku orkuútrásinni.
En það sem er ekki síður fagnaðarefni er að eins og staðan virðist nú, verður þátttaka í fjárfestingunni öllum opin. Ekki verður lengur um það að ræða að stjórnmálamenn handvelji fjárfesta eða renni opinberum eignum saman við einkaaðila.
Þarna er vonandi kominn lausn á þessu deilumáli sem allir ættu að geta sætt sig við.
Vonandi merki um nýja og betri tíma í borgarstjórninni.
Vilja stofna opinn fjárfestingarsjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.