24.11.2006 | 15:53
Sjallar í Norð-Austri
Þá er að skella á prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norð-Austur kjördæminu, það verður kosið á morgun.
Þeir sem ég hef heyrt í úr kjördæminu tala um að sjaldan eða aldrei hafi verið meiri spenna í prófkjöri á "norðurhjaranum" og aldrei meira lagt undir. Kosningaskrifstofur opnaðar, og "stórborgarbragur" á baráttunni.
Það vakti athygli mína að Norðanmennirnir opna aðeins kosningaskrifstofu á Akureyri, en helstu frambjóðendur Austfirðinga opna bæði fyrir norðan og austan. Kunningjar mínar útskýrðu þetta á mismunandi hátt, einn sagði að þetta sýndi auðvitað "helvítis hrokann" í Akureyringum, en annar sagði einfaldlega að þetta sýndi hvar atkvæðamagnið lægi og hvernig "hreppapólítíkin" legði sig, það væri til lítils að leggja net þar sem væri ekki von um afla.
En þetta á örugglega eftir að vera hörku barátta og líklega verða nokkur tíðindi í prófkjörinu, flestir sem ég heyrði í voru þeirrar skoðunar að Kristján myndi hafa þetta, en Arnbjörg hefði þó saxað á forskot hans á undanförnum dögum. Það gæti því brugðið til beggja vona. Því sem næst allir voru hins vegar fullvissir um að Ólöf Nordal fengi góða kosningu.
Síðan ræddu menn möguleikann á því að Ólöf skytist upp fyrir "fallkandídatinn" um fyrsta sætið og hann "súnkaði" niður í það þriðja, um það voru skiptar skoðanir. En menn fullyrtu í mín eyru að "Kristjánsmenn" leggðu baráttuna upp þannig að kjósa ætti Ólöfu í 2. sætið. Hvort að það dugir henni á eftir að koma í ljós.
Aðrir þeir sem eru framarlega í baráttunni eru Þorvaldur Ingvarsson, en þó að flestir teldu að hann blandaði sér ekki í alvöru í baráttuna um 1. sætið, vildu menn meina að það gæti þó skipt sköpum hvað mörg "Akureyraratkvæði" hanm tæki af Kristjáni í 1. sætið. Einn velti því upp hvort að til þess væri leikurinn gerður?
Sigurjón Benediktsson, sem einmitt bloggar hér á blog.is, og Sigríður Ingvarsdóttir voru einna helst nefnd til að fylla topp 6 listann.
En frambjóðendurnir bjóða upp á að stilla upp hörkulista, Sjálfstæðisflokkurinn er í sókn á svæðinu, líklega er ekki óraunhæft að spá þeim 1. þingmanni kjördæmisins og 3. þingmönnum.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Vefurinn | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.