8.11.2006 | 01:57
Ekki alveg samkvæm sjálfri sér?
Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins talaði Ingibjörg Sólrún um slæma útkomu kvenna.
Í frétt á vísi.is sagði:
"Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur hlut kvenna í prófkjöri sjálfstæðismanna ansi rýran. Þetta er gömul saga og ný í Sjálfstæðisflokknum hér í Reykjavík að konur bera þar jafnan skarðan hlut frá borði.
Ingibjörg telur skýringuna hljóta að liggja í hugmyndum flokksmanna um jafnréttismál. Þegar þetta gerist æ ofan í æ er ekki hægt að sjá það öðruvísi en að flokksmenn leggi litla áherslu á jafnréttismál. Það er ekki hægt að segja að ekki hafi verið góðra kvenna völ, segir Ingibjörg en óskar þó sjálfstæðismönnum til hamingju með að hafa fengið Guðfinnu S. Bjarnadóttur í raðir sínar."
Þegar aðeins 1. kona náði sæti á meðal fimm efstu hjá Samfylkingunni á Suðurlandi, var skýringin sú að svo margir karlar voru í framboði og svo bætti hún við að þetta væri niðurstaða kjósenda sem yrði að hlýta.
Skrýtið?
Björgvin sigraði - Lúðvík náði öðru sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:58 | Facebook
Athugasemdir
Það eru auðvitað u.þ.b. jafnt hlutfall af kynjunum sem kýs. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að Samfylkingin hefur sterkari stöðu á meðal kvenna en karla, því er öfugt farið með Sjálfstæðisflokkinn.
Það er því ennþá undarlegra að konur skuli fá svona dræmar undirtektir í prófkjörum Samfylkingar. En skrýtnast er þó að Ingibjörg virðist hafa meiri áhyggjur af stöðu kvenna hjá Sjálfstæðisflokki, en hjá sínum eigin.
Er ekki best að byrja að breyta í eigin ranni?
G. Tómas Gunnarsson, 8.11.2006 kl. 02:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.