22.2.2008 | 20:41
Framboð og eftirspurn
Einhvern veginn finnst mér lögmálið um framboð og eftirspurn óvíða koma betur fram hér í Kanada en í verði á svínakjöti, eða öllu heldur á mismunandi hlutum svínsins.
Kemur þar ákaflega sterkt inn hve hrifnir Kanadabúar eru af svínarifum. Einhver mundi líklega segja að þeir séu óðir í rif. Það veldur því að gjarna er svipað verð á svínarifum og svínalundum.
Þannig var það í dag þegar ég fór að versla í matinn. Tilboð var á bæði svínarifum og lundum. 6.59 dollarar kílóið, hvort sem var rif eða lundir.
Á meðan ég stoppaði við og velti fyrir mér hvaða bakka af lundum ég ætti að taka, komu 5 aðrir að kælikistunni og tóku bakka, og allir - nema ég - völdu rif.
En hér verða lundir í matinn í kvöld.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Vinir og fjölskylda, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.