1.6.2020 | 11:11
Merkileg tímamót
Þó að eflaust þyki mörgum það ekki stór tímamót þó að tiltölulega lítil flugvél sveimi í kringum flugvöll á rafmagni, er það þó merkileg tímamót.
Það er rétt að hafa í huga að fyrir ekki all löngu þótti það ómögulegt að keyra á milli Akureyrar og Reykjavíkur á rafmagnsbíl.
En vissulega er löng leið eftir að því marki að stórar farþegaflugvélar fari langar leiðir á rafmagni.
En framfarir í rafhlöðum hafa verið miklar, og eiga vonandi eftir að verða enn stórstígari.
Enn enn aftur eru það þeir sem leita lausna sem eru mikilvægastir, ekki þeir sem sjá bölvun á hverjum metra framundan.
Jómfrúarferð stærstu rafmagnsflugvélarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Ferðalög | Facebook
Athugasemdir
Rafmagns-flugvélar gætu verið betri hugmynd en rafmagnsbílar.
1: það er alltaf vitað hve langt þær þurfa að fara. Ekkert óvænt þar.
2: þær lenda alltaf á sama stað, og innstungurnar eru til nú þegar. 3 fasa meira að segja.
Sé ekki gallana í svipinn, svu um leið og þetta kemst frá RKV til HFN þá er þetta gott.
Ásgrímur Hartmannsson, 1.6.2020 kl. 11:24
@Ásgrímur, þakka þér fyrir þetta. Það er nú ekki víst að margir myndu vilja "tékka sig inn" til þess að fljúga á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, en það er önnur saga.
En rafmagnið er sniðugt en skapar þó vandamál, eins og t.d. hver hleðslutími verður á lengri leiðum, því flugrekendur vilja vissulega að hægt sé að halda af stað "til baka" eins fljótt og auðið er.
En þetta er í örri framþróun og verður fróðlegt að fylgjast með.
G. Tómas Gunnarsson, 1.6.2020 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.