24.1.2020 | 21:18
Hringtorg sem rokkar
Það hefur eitthvað vafist fyrir Íslendingum hvað sé hringtorg og hvað ekki, en Svisslendingar kunna að láta hringtorgin rokka.
Hér á myndbandinu má sjá stórskemmtilegt hringtorg sem er nálægt skemmtistaðnum/menningarmiðstöðinni KUFA, sem er staðsettur nálægt Bern eftir því sem ég kemst næst.
Sannarlega skemmtileg tilbreytni og ástæða til að taka sér til fyrirmyndar.
Það færi t.d. vel á að skella "hljómplötu" með Ragga Bjarna á Hagatorg, hvort sem það er nú hringtorg eður ei.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Samgöngur | Breytt s.d. kl. 21:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.