Örstutt hugleiðing um kvóta og framsal

Mér finnst það örlítið merkilegt hvað margir eru ósáttir við að litið sé á "óveiddan fiskinn í sjónum" sem eign og hann seldur og veðsettur, þegar það er nákvæmlega það sama og viðgengist hefur til sveita í áratugi ef ekki hundruði?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Nú einmitt , endilega viltu segja mér hvernig og hvað þú átt við ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.4.2007 kl. 01:57

2 Smámynd: Jóhann H.

Fregnir herma að Einar Kr. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra hafi selt glænýjann ráðherrabíl embættisins.  Aðspurður sagðist ráðherrann hafa gert þetta í hagræðingarskyni fyrir ráðuneytið en þó aðallega sjálfan sig. 

Fyrir nokkru varð ráðherrann fyrir því óhappi að velta gamla jeppanum og var honum því úthlutað nýjum jeppa til afnota.  "Þessi gamli var óttalegt skran, næstum þriggja ára og keyrður alveg helling".  Auk þess hafði Árni farið frekað illa með hann" sagði Einar.  "Þetta var því bara lán í óláni". 

Engu að síður kvaðst Einar alltaf hafa verið á þeirri skoðun að svona jeppar væru óhagkvæmir.  Sagði Einar að nýi jeppinn hefði reynst dýr í rekstri auk sem þess skattgreiðslur af bílahlunnindunum væru ráðherra verulega íþyngjandi.  Eftir að hafa ráðfært sig við embættismenn í ráðuneytinu, ákvað Einar að hagræða líkt og menn gera í sjávarútvegi.  Hann væri ekki beinlínis að selja jeppann heldur afnotaréttinn.  "Jeppinn er þ.a.l. söluvara og myndar eignarétt, líkt og kvótinn" sagði ráðherrann og glotti kankvíslega.  

Einar brá sér því á bílasölur um liðna helgi og kannaði markaðinn, verð og eftirspurn.  Sagðist hann að lokum hafa fengið gott tilboð í jeppann sem hann gat bara ekki hafnað.  Einar kvaðst hafa skipt á bílnum og Daewoo skutbifreið, árgerð '99 og litlu fellihýsi.  Milligjöfina, ca. 5.500.000 hyggst Einar m.a. ætla að nota til kaupa á sólarlandaferð fyrir sig og fjölskylduna til Karabíska hafsins.  "Við hyggjumst fara eftir kosningar til að hvíla lúin bein", sagði Einar.  "Kosningabaráttan er oft gríðarlega erfið og henni fylgir mikið álag, bæði á mig og fjölskylduna" sagði Einar og sýndi blaðamanni marblett sem hann hlaut við bílveltu á kosningaferðalgi um daginn. 

Einar sagðist eiga marga vini og kunningja "úr bransanum", í Karbíska hafinu.  Einar kvaðst hlakka mikið til að rifja upp gömul kynni við þessa félaga sína og samflokksmenn.  "Þessir dugnaðarmenn voru mér mikil fyrirmynd í minni hagræðingu en þeir hafa nánast náð fulkomnun í hagræðingarmöguleikum innan sjávarútvegsins".  Sagði Einar þá ekki einu sinni þurfa að koma heim til að standa í þessu basli.  "Við föxum þeim bara kvótaheimildir úr ráðuneytinu og þeir selja og leigja beint úr laptopnum þar sem þeir sitja við sundlaugarbarinn", sagði Einar að lokum.

Jóhann H., 19.4.2007 kl. 02:38

3 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Vildi bara benda að bændur á Íslandi (eða réttara sagt landeigendur) hafa í áratugi ef ekki hundruði, metið óveidda fiska sem verðmæti, framselt réttinn til að veiða þá, veðsett jarðir sínar (þar sem hluti af verðmæti eru veiðiréttindi).  Þeir meira að segja eiga þessa sömu fiska við við strendur landsins, þar sem óheimilt er að veiða lax og silung í sjó, ef ég hef skilið rétt.

G. Tómas Gunnarsson, 19.4.2007 kl. 02:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband