28.12.2014 | 16:29
Ég vil hvorki áróður frá kirkju eða borgaralegum presti á kennslutíma í skólum barnanna minna
Ég hef ekki skoðun á meginefni hennar, en staldraði við þar sem vitnað var í prest þjóðkirkunnar.
Ég er auðvitað hlutdrægur því ég er í hinu liðinu en mér finnst þetta mikilvægt umræðuefni. Ég vil hvorki áróður frá kirkjupresti eða borgaralegum presti í kennslutíma í skólum barnanna minna.
Ég tek heilshugar undir það sem hann segir, en myndi líklega umorða það á þennan veg:
Ég vil ekki áróður frá "prestum", kirkjulegum, borgaralegum eða frá öðrum trúarbrögðum á skólatíma hjá börnunum mínum.
Þar undir myndi að mínu mati falla kirkjuheimsóknir, þar sem prestur heldur tölu, á aðventunni, jafnt sem öðrum tímum ársins.
Það gerir "prestana" ekki óhæfa til kennslu, en þeir verða að gæta sín og virða hlutleysi eins og þeim er frekast unnt.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Trúmál og siðferði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.