25.3.2014 | 20:07
Umbreytingaskeið í Evrópu - Panelumræður
Nýlega voru haldnar panelumræður með yfirskriftinni "Europe in transition", sem ég leyfði mér að þýða sem umbreytingaskeið í Evrópu.
Það var Þýski Marshall sjóðurinn (German Marshall Fund) sem stóð fyrir umræðunum, en þátttakendur voru Toomas Ilves, forseti Eistlands, Federica Mogherini, Utanríkisráðherra Ítalíu og Robert Zoellick, starfsmaður á alþjóðasviði Goldman Sachs (fyrrum bankastjóri Alþjóðabankans).
Umræðustjórnandi er Peter Spiegel, yfirmaður á skrifstofu Financial Times í Brussel.
Persónulega fannst mér Ilves standa sig afar vel og Zoellick kom með góð innlegg, en Mogherini talaði að mestu leyti í frösum.
Aðrir panelar voru haldnir með yfirkriftum, s.s. "Is Europe Losing its East?", "NATO in Transition", og svo "A Conversation with Herman Van Rompuy".
Ég er að horfa á þessi myndbönd eins og ég hef tíma til, en það sem ég pósta hér fannst mér góð.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.