12.3.2014 | 18:35
Sagan hræðir - Rússar eru engir nýgræðingar í yfirgangi
Það er ekkert óeðlilegt að Eystrasaltsríkin séu uggandi. Það gildir reyndar um fleiri ríki á þessum slóðum.
Sagan réttlætir ugg þeirra. Rússar (og fleiri þjóðir) hafa farið um svæðið með yfirgangi og vopnavaldi. Það skipti litlu, hvort við völd var tzar eða "commietzar", nágrannaríkin fengu að finna fyrir "bjarnarklónum" og milljónir manna voru myrtir, eða þrælað til bana.
Herstöðva var krafist, ungir menn með "eins klippingu" birtust á götunum, kosningar voru haldnar í "þvinguðu" andrúmslofti og ríki áttu sér engan stærri draum en að ganga inn í Sovétið.
NKVD/KGB handbókin virðist hafa verið prentuð í nýrri útgáfu, endurbættri og ef til vill fyrir spjaldtölvur.
Og afleiðingarnar eru svipaðar.
Eystrasaltsríkin uggandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.