Það hafa verið nokkrar skoðanakannanir undanfarna daga og nokkuð misvísandi.
Auðvitað er staða eins og þessi ekki eitthvað sem nokkur ríkisstjórn vill sjá, en það er ekkert nýtt að ríkisstjórnir lendi í mótlæti.
Sjálfstæðisflokkurinn er í vel ásættanlegri stöðu í þessari könnun, en Framsóknarflokkurinn er að missa mikið fylgi.
Skyldi einhver halda því fram að það sé vegna afstöðu hans til "Sambandsins", eða vegna kröfu um þjóðaratkvæði um áframhald aðlögunarviðræðna?
Sérstaka athygli vekur sömuleiðis að Björt framtíð er næst stærsti flokkurinn og skýtur Samfylkingunni fyrir aftan sig. Það er engu líkara en BF sé að taka forystu á vinstri vængnum.
Fyrrverandi stjórnarflokkar með undir 25% fylgi samanlagt.
40,9% styðja ríkisstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.