23.2.2007 | 23:09
Snæfinnur í stutta heimsókn að Bjórá
Það snjóaði hressilega hér í gærmorgun, þessi líka fíni byggingasnjór. Það var svolítið misjafnt hvernig fólkið tók þessu hér að Bjórá, en Foringinn var himinlifandi og sagð: Pabbi, það er gott að það er að snjóa, þá getum við farið út að moka.
Það var auðvitað ekki undan því vikist, og þegar mokstrinum var lokið var lagt í einn snjókall. En endalok "Snæfinns" urðu þó heldur dapurleg, því hann féll saman strax seinnipartinn, því hlýindin ágerðust.
En nærvera hans var honum til mikils sóma, á meðan var.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Foringinn er flottur með skófluna! Og Snæfinnur er flottur líka! Gaman að sjá myndbandið!
Berglind Nanna Ólínudóttir, 24.2.2007 kl. 01:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.