23.2.2007 | 16:22
Ekkert hvalræði?
Það vakti þó nokkuð umtal fyrir fáum vikum þegar Whole Foods hætti að "hampa" Íslenskum vörum. Það mikla athygli að ýmsir menn sem hafa áhuga á þingsetu töldu málið allt líklegt til snúast á versta veg og kosta Íslensku þjóðina háar upphæðir.
Það virðist sem svo að Whole Foods hafi fyrst og fremst þurft á frekari stuðningi Íslensku þjóðarinnar til markaðsetningar.
Skyldi einhver stjórnmálamaðurinn eða þingsetu áhugamaður spyrja um kostnaðinn við það?
Það kom í ljós að lambakjöt hafði verið selt í Whole Foods með tapi Íslenskra framleiðenda. Það væri óskandi að það kæmi í ljós hver raunverulegur ávinngur er af annari sölu í verslunarkeðjunni, sérstaklega þegar tekið væri tillit til kostnaðar við markaðssetninguna?
Íslenskar afurðir í útrás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Matur og drykkur, Viðskipti | Facebook
Athugasemdir
Er Whole Foods stjórnað af fólki með klofinn persónuleika? Ef svo er myndi ég ekki veðja á þennan bisness.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.