23.5.2013 | 21:25
Frelsi til framfara - nýtt tímabil
Mér lýst ljómandi vel á nýja ríkisstjórn og óska henni og þeim ráðherrum sem í henni starfa alls hins besta, farsældar og velfarnaðar í starfi.
Ég, eins og líklega svo margir aðrir, bind góðar vonir við þessa ríkisstjórn og horfi án söknuðar á þá sem nú hverfur inn í söguna.
Þó að stjórnarsáttmálinn sé ekki "nákvæm leiðsögn" inn í framtíðina, líst mér vel á hann. Það er gott og tímabært að stöðva aðlögunarviðræðurnar við "Sambandið" og aðalverkefnið hlýtur að vera að auka verðmætasköpun Íslendinga.
Það þarf einnig að taka til í ríkisrekstrinum. Lækka útgjöld og ef til vill ekki síst færa þau til.
Það þarf enginn að óttast að ríkisstjórnin hafi ekki næg verkefni, þvert á móti.
En mér líst vel á byrjunina og vel á mannskapinn.
Ég er sérstaklega ánægður með að stemmingin og traustið virðist vera gott, og að ekki er farin sú braut að skipta á forsætisráðuneytinu eftir einhver ár.
Það þarf að forðast ráðherraskipti eins og kostur er. Ráðherrastarfið er ekki íhlaupavinna.
Ný ríkisstjórn formlega tekin við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.