25.2.2013 | 07:09
Bjargað í horn, en skaðinn að hluta til skeður
Það er auðvitað með eindæmum að Sjálfstæðisflokkurinn hafi upphaflega samþykkt ályktun í þessa veru.
Að vilja láta kristin gildi vera ráðandi við alla lagasetningu er einfaldlega stórvarasöm hugsun. Það er að mínu mati jafn galin hugmynd og að ætla að samþykkja tillögur að breyttri stjórnarskrá athugasemdalaust.
Sem betur fer hleypti Landsfundur þessari ályktun ekki í gegn.
En því miður er skaðinn að hluta til skeður. Það þarf ekki nema að sjá hvernig andstæðingar flokksins hanga á þessari tillögu eins og hundar á roði, til að gera sér grein fyrir því hvers kyns "bein" þeir telja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hent í átt til þeirra.
Tillaga sem þessi á enda að mínu mati ekkert erindi í stjórnmálaumræðu dagsins í dag.
Tillaga um kristin gildi felld út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.