13.2.2013 | 13:02
Reksturinn tryggður - alveg þangað til það þarf meira fjármagn
Þessi fyrrisögn sem höfð er eftir Pétri Blöndal er skemmtilega lýsandi.
En reyndar ekki eingöngu fyrir Hörpu, heldur svo margt í nútíma samfélögum. Það er fátt sem einhverjir vilja ekki velta yfir á skattgreiðendur eða að þeir borgi á einn eða annan hátt.
Listinn yfir slíkt yrði langur og leiðinlegur aflestrar ef einhver tæki hann saman.
Það þarf ekki lengi að leita í fréttum, hvar sem er í heiminum, til að komast að því að þetta er, í einni eða annarri mynd, eitt af allra stærstu deilum samtímans.
Útblásin opinber rekstur og opinberar ábyrgðir hafa enda verið fyrirferðarmikil í fréttum undanfarin ár.
En sitt sýnist hverjum, nú sem endranær, en stórfelld vandræði í fjármálum hins opinbera víða um lönd mun án efa tryggja að deilur um "draumaverkefni" og opinberar ábyrgðir munu verða fyrirferðarmiklar um ókomna framtíð.
P.S. Eins og sjá má í þessari frétt, reynist það stjórnmálamönnum mun auðveldara að leysa rekstrarvanda Hörpu en Landsspitaland. Líklega hafa þeir komið heldur oftar á fyrri staðinn undanfarna mánuði.
Draumur fárra að martröð margra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.