21.12.2012 | 17:34
Merkilegur og góður dagur
Ég hef lengi álitið 21. desember merkisdag. Ekki vegna þess að ég hafi spáð fyrir heimsendi, eða að ég telji að meiri hætta sé slíkum ósköpum á þessum degi en öðrum.
En vetrarsólhvörf er merkisatburður, á hverju ári.
Þessi stutti dagur, og að vita af því að dagsbirtan verði örlítið lengri á hverjum degi, alveg þangað til í júní, er þægileg tilhugsun.
Þennan dag gerum ég og fjölskyldan okkur alltaf dagamun í mat, í ár var góð og safarík rifjasteik á borðinu, með dísætu heimalöguðu rauðkáli, rauðrófum og kartöflum.
Sveinbjörn Beinteinsson kvað fyrir okkur Eddu af einum af mínum uppáhalds geisladisk, sem er annar fastur liður á þessum merkisdegi. Eldurinn logar í arninum og örlítið rautt glitrar í glasinu.
Spurning hvort að ekki þurfi að blóta "Hákoni" þegar líður á kvöldið.
Vonandi sjáum við sólina á morgun.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.