12.12.2012 | 11:01
Hvernig á að framleiða orku, hvað á að gera við hana?
Eitt af stærstu ágreiningsefnum á Íslandi, og reyndar víðar, hefur undanfarin ár verið orka. Hvernig, eða hvort á að framleiða hana og ef á að framleiða hana, hvað á að gera við hana?
Fátt bendir til annars en að slíkur ágreiningur verði áfram til staðar um ókomin ár.
En stöðugt framboð af ódýrri orku skiptir gríðarlega miklu máli í nútíma samfélagi. Lækkandi orkuverð hefur skipt sköpum fyrir Bandaríkin, aukið atvinnu þar og átti líkega stóran þátt í endurkjöri Obama. Það að gasverð í Bandaríkjunum sé aðeins u.þ.b. 1/3 af verðinu í Evrópu gefur fyrirtækjum Vestanhafs gríðarlegt forskot og skiptir oft sköpum þegar fyrirtæki ákveða frekari eða framtíðar uppyggingu.
Það er vandséð að vindorka verði stór stoð í Íslenskri orkuöflun á næstunni. Vindorkan hefur reynst of dýr og um hana hefur staðið styr víða um lönd. Vegna verðs, vegna hávaða- og sjónmengunar og vegna dýraverndunar (aðallega fugla og leðurblaka).
En það þýðir ekki að full ástæða er til að gera rannsóknir á mguleikum vindmylla á Íslandi, þannig að hægt sé að hefjast handa ef hægt verður að framleiða rafmagn á samkeppnishæfu verði. Ég held að ekki sé síst ástæða til að rannsaka framleiðslu rafmagns með smærri vindmyllum í þéttbýli. Til dæmis á þökum háhýsa.
Allra best væri auðvitað ef hægt væri að byggja á og nota Íslenskt hugvit og tækni, sbr. þessa frétt.
En Íslendingar munu byggja orkubúskap sinn að lang mestu leyti á vatns og jarðhitaorku. Um þá orkuöflun mun án efa standa styrr um ókomna framtíð.
Hvar á/má virkja? Hvað á að gera við orkuna? Eigum við að nýta hana fyrst og fremst innanlands, eða reyna að selja í gegnum jarðstreng? Hvernig iðnað viljum Íslendingar sjá nýta orkuna innanlands? Og svo framvegis.
Að reikna með að rammaáætlun verði til lykta leidd á Alþingi á fáum dögum, svo að vel fari er auðvitað goðgá.
En alvöru umræða fengi líklega fljótt á sig málþófsstimpilinn. En það er líka alls óvíst að hún skilaði nokurri niðurstöðu.
En ef aðeins atkvæðagreiðsla á að ráða, þá er ekki ólíklegt að skipt verði um stefnu á fjögurra ára fresti um ófyrirsjáanlega framtíð.
Það er þess vegna sem oft gefst vel að búa til málamiðlanir.
Virkjanir geta bætt umhverfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.