18.1.2012 | 14:31
Önnur tilviljun?
Talað er um að Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn vilji auka sjóðinn sinn upp í 1.000.000.000.000 Bandarískra dollara.
Á sama tíma er byrjað að tala um að Fitch munu lækka lánshæfismat 6 euroríkja, þar á meðal Ítalíu og Spánar um 1. til 2. þrep. "The word on the street" segir að líklegast sé að Italía fengi lækkun um 2. þrep.
Sömuleiðis eru skuldaviðræður Grikkja í uppnámi, þær eru þau byrjaðar aftur, en nú er talað um 60 til 70% niðurfellingu og hugsanleg lög sem myndu heimila meirihlutaákvörðun í málinu.
P.S. Það er rétt að taka það fram að Fitch er ekki eigu "vondra Bandaríkjamanna" heldur í "góðri" Evrópskri eigu, nánar tiltekið Franskri.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Evrópumál, Utanríkismál/alþjóðamál, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.