Það er víða hætta á lækkun lánshæfismats

Það er ekki bara yfir euroríkjum sem matsfyrirtæki setja upp vandlætingarsvip og setja viðkomandi á gátlista með undirliggjandi hótun um lækkun lánshæfismats.

Í gær var stærsta fylki (eða hérað) Kanada, Ontario sett á gátlista og horfum þess breytt úr stöðugum í neikvæðar.  Einkunn Ontario er AA1.

Í sjálfu sér held ég að þetta hafi komið fáum á óvart.  Skuldir og rekstrahalli hafa aukist töluvert og Ontario hefur flust úr "have province" yfir í "have not province" flokk hjá Kanadíska alríkinu.

Skuldasöfnun hjá opinberum aðilum víðast hvar í heiminum hefur aukist hröðum skrefum, enda hefur aðgangur að fjármagni verið því sem næst ótakmarkaður og kostnaður lítill.  Það eru kjöraðstæður fyrir eyðslugjarna stjórnmálamenn sem lofa upp í ermar hins opinbera. 

En það kemur ætíð að skuldadögum, og það er engu líkara en víðast hvar sé stefnan inn í þá miðja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband