Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011
2.2.2011 | 21:49
Groundhog Day
Groundhog Day (sem einnig ljómandi bíómynd), er í dag, dagurinn sem þessi vinalegu nagdýr segja okkur hvort að vorið sé á næsta leiti eður ei. Hæfileikar nadýranna eru vissulega umdeildir, en mikið húllumhæ hefur byggst upp í kringum hefðina.
Það er fátt sem minnir á vorið hér á Bjórá í dag, frost og hríð og veðrið nógu vont til þess að skólar eru lokaðir (þarf ef til vill ekki eins mikið til og hér í eina tíð). En nagdýrið okkar hér í Ontario fullyrðir samt sem áður að vorið sé rétt handan við hornið. Vonandi verður "Spanish Joe" sannspár hvað það varðar.
En hér má sjá samantekt National Post á því hvernig spár hafa fallið þetta árið.