7.11.2008 | 06:26
Kæri Jón, þú ræður þessu á endanum. Það vita allir.
Ég get ekki gert að því að ég hálf glotti þegar ég les svona fregnir. Eina sem er fréttnæmt í þessu er að hugsanlega verður ekki af sameiningu Morgunblaðsins og Fréttablaðsins.
Hvaða máli skiptir hvað Jón Ásgeir á mikið í Rauðsól/365/Dagsbrún/Nýrri sýn?
Eru allir búnir að gleyma hvernig eignarhaldið á 365/Dagsbrún lengst af?
Er hægt að ætlast til þess að allir glenni upp þverrifuna og klappi saman höndunum ef Jón Ásgeir seldur einhvern hluta af Rauðsól/365/Dagsbrún/Nýrri sýn til viðskiptafélaga sinna eins og Pálma Haraldssonar?
Þetta skiptir engu máli, enda í raun ekki hægt að setja lög sem koma í veg fyrir að "blokkir" eignist fjölmiðla, það er tómt mál að tala um, það má alltaf finna viljuga leppa.
Það er lang einlægast að vitna í núverandi aðstoðarmann Samgönguráðherra og varaþingmann Samfylkingarinnar, Róbert Marshall:
"Kæri Jón, þú ræður þessu á endanum. Það vita allir."
Tilbúinn til að fara niður fyrir 40% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Fjölmiðlar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.